Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1975, Blaðsíða 32

Ægir - 15.12.1975, Blaðsíða 32
FRÉTTIR í NÓVEMBER SÍLDVEIÐARNAR Á heimaslóðunum tók síldin að horast sv>o snemma i nóvember að hún gat varla talizt söltunarhæf aö sögn kunnugra manna. Um miðjan nóvember voru flest nótaskipin búin að fylla kvóta sinn og vel það. 20 skip höfðu farið yfir 215 tonna markið og 6 yfir 250 tonn. Það var aldrei hægt að ætlast til þess að menn væru með búrvigtar á þessum pödd- um, sem leyft var að veiða í haust í tilrauna- skyni, en þegar menn fara beinlínis að fara út í túra til að sækja ólöglega farma, þá náttúrlega reiðast löghlýðnir Islendingar (það er nú með þá eins og berklana, maður heldur alltaf að þeir séu útdauðir og svo eru þeir alltaf einhversstaðar að skjóta upp kollinum). Það leyndi sér ekki að sjávarútvegsráðu- neytið ætlaði ,að taka vægilega á smá-kvóta- brotum, en þá gengu bara einstaka menn strax á lagið, þannig að ekki gat orðið um annað að ræða en beita þá hörku. Reknetaveiðarnar. Það hefur verið dauft yfir reknetaveiðun- um í sumar og haust og heildarafli rekneta- bátanna innan við 1000 lestir alls (beitusíld + söltun) um mánaðamótin október og nó- vember, en þær hófust um miðj.an ágúst. Upp úr miðjum nóvember glæddist reknetaveiðin skyndilega. Hann gekk þá til landáttar fyrir Suðurlandi austanverðu og síldin grynnkaði á sér og gaf sig til í reknetin. Það var ekki seinna vænna, því að 1. desember voru allar síldveiðar fyrir Suðurlandi og við ísland bann- aðar. Hvorttveggja var að heildarkvótinn (10 þús. tonn) var fullur orðinn og sem áður segir vel það. Auk þess var síldin alls ekki söltunar- hæf orðin. NorðUrsjávarveiðarnar. Það voru yfirleitt 10—15 skip að veiðum í Norðursjó og Skagerak og fyrir vestan 4. gráðuna út mánuðinn eða þar til veiðarnar voru alveg stöðvaðar þann 25. nóv. samkvæmt fyrirskipan frá sjávarútvegsráðuneytinu. Eins og venja er gengu veiðarnar betur þegar leið á haustið og jafnframt hækkaði verðið. Síðustu dagana lokuðust dönsku hafn- irnar vegna aðgerða sjómanna þar, sem voru að mótmæla veiðiákvæðum danskra stjórn- valda einmitt í Norðursjó. íslenzku bátarnir seldu þá nokkra farma í Hollandi og Vestur- Þýzkalandi fyrir ágætt verð. Á fundi Norðaustur-Atlantshafsnefndar- innar í London, dagana 11.—19. nóv. báru íslendingar fram þá tillögu að algert bann yrði lagt við síldveiðum í Norðursjó allt árið 1976 og var þessi tillaga í samræmi við til- lögu Alþjóðahafrannsóknarráðsins (ICES), sem áður hefur verið getið hér fréttum Æg- is. Þessi tillaga íslands var felld í Norðaustur- Atlantshafsnefndinni með 10 atkv. gegn 3. Þegar síldveiði íslenzku veiðiskipanna lauk 25. nóv. voru þar 15 skip, 9 úti á miðunum en 6 að selja í Hollandi og Þýzkalandi og hafði þannig heldur f jölgað frá því fyrri hluta mánaðarins, enda skruppu sum Norðursjáv- arskipanna heim að taka kvóta sinn hér. Frá því Norðursjávarvertíðin byrjaði í apríl og þar til henni lauk í endaðan nóvem- ber, veiddu ísl. skipin alls 19.800 lestir og fór sú síld til manneldis og meðalverðið var kr. 43.75 ísl. pr. kg. Heildarverðmæti v,ar um 870 milljónir. Eins og áður hefur verið rakið hér, höfðu Islendingum verið ætlaðar 19 þús. lestir frá 1. júlí í sumar til jafnlengdar næsta árs, og þess jafnframt óskað að þeir veiddu sem svaraði þriðjungi þessa heildarmagns fyrir áramót nú. íslendingar höguðu þó veiðunum með öðrum hætti, enda lögðu þeir til, að þær yrðu bannaðar allt árið 1976. Þeir veiddu því um 11 þús. lestir nú af ársmagninu og eiga þá ekki eftir nema sem svarar 8 þúsund lestum næsta ár fram að 1. júlí miðað við það heild- armagn, sem ákveðið hafði verið. Þó að ekki næðist samkomulag um algert bann við veið- unum 1976, þá er það glöggt að fyrir okkur íslendinga verður lítill veigur í þessum veið- um næstu árin meðan stofninn er að jafna sig. Mauritaníuveiðarnar. íslenzku skipunum hefur ekki gengið vel við veiðarnar úti fyrir vesturströnd Afríku, nema tímakorn, sem þau voru í sardínunum, sem er minni fiskur en makríllinn og viðráð- 414 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.