Ægir - 01.05.1979, Blaðsíða 22
Togararnir 1977 og 1978
Stóru togararnir
1977-1978.
Enn sem fyrr verða úthaldsdagar sumra skipa
fleiri en dagar almanaksársins og ástæðan sú, að
úthald er látið fylgja löndunardögum. Togurunum
fækkaði um þrjá á árinu 1977. Maí landaði
síðast 14. jan. og var lagt, seldur til Noregs og fór
þangað að kvöldi 4. maí. Þormóður goði landaði
síðast 3. okt., seldur og afhentur nýjum eigendum
18. okt. og breytt í nótaskip á árinu 1978. Heitir
nú Óli Óskars og fór á loðnu í febrúar 1979.
Þessir tveir voru siðustu stóru síðutogararnir sem
haldið var til veiða. Narfa var lagt 7. mars, breytt í
nótaskip og fór á loðnu 18. jan. ’78. Var seldur til
Eskifjarðar að vertíð lokinni og heitir nú Jón
Kjartansson. Þá var Hrönn lagt 20. des. og ekki
gerð út árið 1978.
Veiðar á svokölluðum fjarlægum miðum eru
tæpast nema nafnið eitt núorðið, því við höfum
ekki aðgang að öðru en Dohrnbankanum austan-
verðum. Um afla þar vísast til töflu.
Flotvörpuaflinn hefur heldur vaxið og er mest-
allur þorskur. Smávegis hefur verið reynt á karfa-
slóð, en með litlum árangri.
Minni togararnir
1977.
Við eftirfarandi töflur um afla og úthald þykir
rétt að gera eftirfarandi athugasemdir: Haustið 1977
voru Runólfur og Guðmundur Jónsson leigðir um
skeið til kolmunnaveiða með flotvörpu, og er
árangur þeirra talinn með í aflaskýrslunni. Var
hann eftirfarandi:
Veiði- AJli Úthalds- Toga- Togtími
ferðir lestir dagar fjöldi klst.
Runólfur .... 5 388,6 26 27 84
Guðm. Jónsson 4 120,3 33 17 61
Samtals ..... 9 508,9 59 44 145
Dagrún notaði þorskveiðibann dagana 27-29
júlí til þess að leita rækju, 1 veiðiferð sem 1
fengust 0,6 lestir og reiknast 5 úthaldsdagar i
þetta. Taka ber tillit til framangreindra atriða
ef verið er að athuga árangur á venjulegum tog-
veiðum, og draga þessi afbrigði frá.
Sólbakur, sem áður var talinn með stóru tog-
urunum, fluttist í hóp þeirra minni við breytta
kjarasamninga.
1978.
Breki (áður Guðmundur Jónsson) stundaði ein-
göngu loðnuveiðar á árinu. Brynjólfi var lagt 20.
júní, seldur til Frakklands, og fór þangað 27. des..
Heiðrún var á línuveiðum 14. jan.-20. maí og fór a
troll 23. maí. (Aflinn á línuna var 720,4 lestir í ló
veiðiferðum, úthald talið 129 dagar).
Leiðréttingar á töflum 1976.
(Ægir, 10-11 tbl. 1977).
Minni togararnir 1976:
Þau mistök urðu við gerð töflu um afla minn1
togaranna, að 3 landanir í Færeyjum voru taldar
með heimalöndunum. Vor þær þessar:
Veiði- Afli Úthalds- Toga- Togtt/n<
ferðir lestir dagar fjöldi klst.
Hjörleifur .... 1 79,1 25 63 160
Hegranes....... 1 79,2 19
Stálvík ......... 1 135,8 19 68 231
Samtals ......... 3 294,1 63
Þá liggja fyrir sóknartölur frá einum togara ll*
viðbótar. Bjartur tók 1.415 tog, togtími 4.290 klst*
Afli stóru togaranna í flotvörpu 1976.
Taflan er endurbirt vegna þess hve brengln^
hún var - karfann vantaði.
274 — ÆGIR