Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1979, Síða 70

Ægir - 01.05.1979, Síða 70
NÝ FISKISKIP Sigurey SI 71 Þann 4. febrúar 1978 bættist nýr skuttogari í flota landsmanna, er skuttogarinn Sigurey SI-71 kom til heimahafnar sinnar, Siglufjarðar. Skipið er byggt árið 1973 hjá Ateliers & Chantiers de la Mamche í Dieppe, Frakklandi,* og er smiða- númer 1236 hjá stöðinni. Sigurey er í eigu Tog- skips H.F. Siglufirði, sem á fyrir skuttogarann Dagnýju SI-70. Skipstjóri á Sigurey er Kristján Rögnvaldsson og fyrsti vélstjóri Þorsteinn V. Pétursson. Framkvæmdastjóri útgerðarerSigurður Finnsson. Ýmsu var breytt um borð í skipinu og í það settur nýr vélbúnaður eftir að það var afhent núverandi eiganda. Sumar breytingarnar voru framkvæmdar af erlendum aðilum, veigamest þeirra er lenging neðra þilfars þannig að nú hefir skipið tvö heil þilför stafna í milli. Þær breytingar sem gerðar voru á skipinu hér heima voru unnar af Slippstöðinni H.F. Akur- eyri. Helstu breytingar á stálvirki eru að neðra þilfar var framlengt fram í stefni og skiptir nú aðallest skipsins í tvær lestar efri og neðri lest. Bobbingaskeifa var sett í skipið og ýmsu öðru breytt í samræmi við þann búnað, sem fór um borð í skipið, og til samræmis við kröfur Sigl- ingamálastofnunar Ríkisins, og má þar til nefna skutrennuloku. fbúðarými var breytt á þann veg að matsalir sem voru tveir voru sameinaðir og eldhúsi þokað til. Af vélrænum búnaði má nefna að í skipið var sett hjálparvél ásamt rafala, ísvél og frysti- tæki með tengdum búnaði. Vökvaknúin flotvörpuvinda og tveir vökva- knúnir losunarkranar voru einnig settir í skipið. í brú var settur nýr radar. Almenn lýsing: Skipið er byggt samkvæmt reglum og undir eftirliti Bureau Veritas, í flokki I 3/3 E + Fishing Vesel Deep, Sea. + MOT. Skipið er skuttogari með tvö þilför hvalbak og skutrennu upp á efra þilfar. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með þilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylk' með keðjukössum, en stafnhylkið nær upp að efra þilfari; fiskilest með botngeymum fyrir vatn, hágeymar fyrir olíu, með asdikklefa frenist, vélarúmi með olíugeymum fremst og í síðum; ohu- geymar yfir stefnisröri og aftast eru skuthylki. Fyrir aftan stafnhylki á neðra þilfari er fiski- lest. Þar fyrir aftan er íbúðarými aftur með báðurn síðum, og fremst er tengigangur á milli. í miðju er vélarreisn og gangur fyrir færibönd mifi* fiskmóttöku, sem er fyrir aftan vélarreisn, og að- gerðarrýmis, sem er í hvalbak. Aftast í miH1" þilfarsrými eru geymslur í síðum og stýrisvélarum í miðju, undir skutrennu. Á efra þilfari, undir hvalþak, er geymsla fremst. en þar fyrir aftan vinnuþilfar. Aftan við hvalbak er þilfarshús, í miðju skips, en í því er loftræstinga- klefi, stigahús og gangur fyrir færibönd milli vinnu- þilfars og fiskmóttöku. Aftan við og til hliðar vi þilfarshús er togþilfar skipsins. í framhaldi af skut- rennu er vörpurenna, en hún greinist í bobbinga- rennur nokkru aftan við þilfarshús og ná þær fram að hvalbak. Úti við síður, sitt hvoru megin vi vörpurennu eru síðuhús (geymslur). Yfir frambrun skutrennu er bipodmastur, en yfir afturbrún er toggálgi. Yfir þilfarshúsi, aftan við hvalbak, er yfirbygging skipsins, á neðri hæð eru íbúða- klefar og klefi fyrir tovindumótor, en á efri hæ eru tveir íbúðaklefar úti við síður, en brú skip sins er á milli þeirra og framan við. Ofan á bru er mastur fyrir hífingablakkir. Vélabúnaður: . Aðalvél skipsins er frá Crepelle, gerð 12 P^ SRR, tólf strokka fjórgengisvél, sem skilar 2000 b° við 800 sn/mín. Við vélina er niðurfærslugír lf3 Hindmarc Messian, gerð ER 2 ML 438, niður færsla 4:1, og skiptiskrúfubúnaður frá Escher WysS’ Á niðurfærslugír eru tvö úttök (1500 sn/mím fyrir rafala. Annars vegar er jafnstraumsraia > frá Leroy, gerð C 400, 250 KW, fyrir vindubúna skipsins. Hins vegar er riðstraumsrafall frá Lero>- gerð TA 2800 L10, 3x380 V, 50 Hz, 175 KVA fyr‘r rafkerfi skipsins. Hjálparvélar eru tvær frá Caterpillar, önnur ger. D 343 TA, 305 hö við 1500 sn/mín. Við fren^ enda vélarinnar er Leroy jafnstraumsrafall, Ser C 315, 66 kw, sem er vararafall fyrir vindubúnar- Við aftari enda hennar tengist Leroy riðstraums rafall af sömu gerð og er á aðalvél. Hin hjálparvélin er af gerð 3304T 121 hö 322 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.