Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1980, Síða 39

Ægir - 01.05.1980, Síða 39
Langhali, hæfur til frystingar: Hvert kg ..............................kr. 78.00 Hrogn: L flokkur, pr. kg ....................kr. 364.00 2- flokkur, pr. kg .................... - 177.00 Skarkoli, hæfur til frystingar: Hvert kg ..............................kr. 86.00 Kassafiskur: Þegar slægður fiskur eða óslægður karfi er ísaður 1 kassa í veiðiskipi og fullnægir gæðum í 1. flokki, greiðist 12% hærra verð en að framan greinir, enda sé ekki meira en 60 kg af fiski ísað í 90 lítra kassa, 45 kg í 70 lítra kassa og tilsvarandi fyrir aðrar stærðir af kössum. Eigi skal greiða hærra verð (kassabætur) fyrir þann hluta af afla veiðiskips, sem er í kössum, sem reynast innihalda meira en Llskilda hámarksþyngd samkvæmt sýnatöku. Línufiskur: Fyrir slægðan og óslægðan þors, ýsu, steinbít, löngu, keilu og grálúðu, sem veitt er á línu og full- nægir gæðum í 1. flokki, greiðist 10% hærra verð en framan greinir. Sé framangreindur línufiskur isaður í kassa í veiðiskipi greiðist 14% álag í stað 10%. Ferskfiskmat: Um mat á fiski fer samkvæmt reglugerð nr. 55 20. mars 1970 um eftirlit og mat á ferskum fiski o.fl., eða reglum, sem kunna að verða settar síðar. ^erðuppbót á karfa: Með vísun til ákvæða laga um Aflatrygginga- sJóð samþykkt á Alþingi 24. janúar 1980, skal greiða 25% uppbót á framangreint verð á karfa allt verð- tjmabilið að meðtöldum uppbótum á kassafisk og l'nufisk. Uppbót þessi greiðist úr verðjöfnunar- deild Aflatryggingasjóðs og annast Fiskifélag Islands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir reglum Sem sjávarútvegsráðuneytið setur. ^nnur ákvæði: Við stærðarákvörðun skal mæla eftir miðlínu fisks frá trjónu um sýlingu á sporðblöðkuenda. öll verð miðast við að fiskur sé veginn íslaus °8 seljendur afhendi fiskinn aðgreindan eftir teg- undum á flutningstæki við skipshlið. Á það skal bent, að æskilegt er að áhafnir veiði- skipa flokki sjálfar aflann eftir stærð áður en hann er afhentur til vinnslu verði slíkri vinnutilhögun við komið. Reykjavík 11. apríl 1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Verð á kolmunna og spærlingi til bræðslu. Tilkynning nr. 10/1980. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á kolmunna og spærling til bræðslu frá byrjun vorvertíðar 1980 til 31. ágúst 1980: Hvert kg .............................kr. 12.50 Verðið er uppsegjanlegt frá og með 1. júní og síðar með viku fyrirvara. Verðið er miðað við 3% fituinnihald og 19% fitufrítt þurrefni. Verðið breytist um kr. 1.30 til hækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihald hækkar frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0,1%. Verðið breytist um kr. 1.70 til hækkunar eða lækkunarfyrir hvert 1%, sem þurrefnismagn breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0,1%. Auk verðsins, sem að framan greinir, skal lögum samkvæmt greiða fyrir spærling og kolmunna 2,5% olíugjald og 10% gjald til stofnfjársjóðs fiskiskipa, sem ekki kemurtil skipta. Verksmiðjunum ber þannig á grundvelli þessarar verðákvörðunar að greiða til veiðiskipa eftirfarandi heildarver. Heildarverð til útgerðar að meðtöldu olíugjaldi og stofnfjársjóðsgjaldi: 1. Fyrir hvert kg af spærlingi og kol- kolmunna miðað við 3% fituinni- hald og 19% fitufrítt þurrefni .... 14.06 2. Viðbót fyrir frávik um 1% að fitu- innihaldi frá viðmiðun sbr. hér að framan ............................ ( 46 3. Viðbót eða frádráttur fyrir frávik um 1% að þurrefnisinnihaldi frá við- miðun sbr. hér að framan ............. 1.91 Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers kolmunna- og spærlingsfarms skal ákveðið af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips og ÆGIR — 279

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.