Ægir - 01.01.1981, Blaðsíða 26
aðurinn verði fyrir hendi, — öllu betri en verið hefur
vegna minna framboðs.
Það er að ýmsu leyti hagstætt okkur að selja á
þessum markaði. Að vísu tapast sá vinnsluvirðis-
auki, sem felst í því að vinna fiskinn frekar. En
henti aflinn markaðnum hvað varðar samsetningu
og gæði og falli sala á tíma þegar lítið framboð er,
fæst oftast verð sem gefur síst minna vinnsluvirði
af sér en frekari vinnsla.
Annar þáttur, sem veldur því, að leggja beri
rækt við þennan markað er, að vandkvæði hafa
reynst á því að selja ýmsar tegundir, í unnu ástandi
við því verði sem gerir nýtingu þessara tegunda
eftirsóknarverða. Fyrir þessar tegundir, t.d. karf-
ann, er tiltölulega tryggur markaður á ferskfisk-
mörkuðum Evrópu.
Ályktun 39. Fiskiþings um
markaðsmál
1. 39. Fiskiþing telur að stöðugt þurfi að vinna af
fullum krafti við að leita nýrra markaða fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir, allsstaðar sem því verður
við komið.
2. Að ekki sé mögulegt að ákveða eitt allsherjar
fyrirkomulag í sölu- og markaðsmálum, vegna
þess að um margar og ólíkar afurðir er að ræða,
enda líklegast til árangurs, að framleiðendur í
hverri framleiðslugrein, komi sér sjálfir saman
um sölufyrirkomulag.
3. Þingið er þeirrar skoðunar að vönduð og galla-
laus framleiðsla sé höfuðskilyrði fyrir góðum
árangri í sölu- og markaðsmálum, og hvetur því
alla framleiðendur sjávarafurða, til þess að
standa saman um framleiðslu vandaðrar vöru.
4. Að hvetja samtök og einstaklinga til frumkvæð-
is um útflutning á ónýttu hráefni, svo sem rauð-
maga, kræklingi og fleira.
5. Að unnið verði að því að fella niður og lækka
óeðlilega háa tolla af unnum fiskafurðum, eins
og t.d. ferskum fiskflökum, sem seldar eru hjá
aðildarríkjum Efnahagsbandalagsins.
Þorsteinn Gíslason:
Skýrsla fræðslu- og
tæknideilda
Hr. forseti,
ágætu þingfulltrúar.
Skýrslunr fræðslu- og
tæknideilda var vísað
beint til fiskiðnaðar- og
tækninefndar. Við höf-
um fjallað um þessar
skýrslur og lýst vel á
margt. í sambandi við
fræðslu- og tæknideildir
Fiskifélagsins tel ég það
lán Fiskifélags íslands
hve hæfir starfskraftar hafa ráðist til þessara deilda.
Störfin hafa ef til vill verið unninn í full mikilli
kyrrþey, en árangur starfsins speglast í afstöðu og
viðbrögðum þeirra sem notið hafa. Þar koma fram
raddir viðurkenningar og þakklætis. Ég hef enga
óánægjurödd heyrt frá þeim sem vitnað hafa um
störf þessara deilda.
Eftir að hafa farið i gegnum skýrslurnar, þá
komst fiskiðnaðar- og tækninefnd að samkomu-
lagi um að álykta:
,,39. Fiskiþing þakkar starfsmönnum fræðslu-
og tæknideilda vel unnin störf og greinargóðar
skýrslur ársins 1980. Felur þingið stjórn félagsins
að beita sér fyrir:
1. Að komið verði á námskeiði fyrir sjóvinnu-
kennara í ágúst 1981.
2. Að komið verði á fullorðinsnámskeiðum fyrir
skipstjórnar- og vélstjórnarmenn, þar sem þörf-
in er mest á landinu.
3. Að fjölbrautaskólarnir komu sér upp sjávarút-
vegsbrautum sem gera nemendum kleift að
ljúka að hluta námi í hinum ýmsu fögum sjáv-
arútvegs.
4. Að aðstoða kennara sem afla vilja sér endur-
menntunar erlendis í fögum sjávarútvegsins.
5. Að stuðla að þvi að hlutur íslendinga verði sem
mestur í þeirri norrænu samvinnu sem nú er haf-
inn í sjávarútvegsfræðslu.
6. Að starfsemi Tæknideildar verði efld, m.a. með
þvi að kaupa vægismæli til að mæla álag véla.
14 — ÆGIR