Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1982, Page 27

Ægir - 01.01.1982, Page 27
Ríkarð Jónsson: Um markaðsmál 40. Fiskiþingi hafa borist ályktanir frá tveimur fjórðungsþingum, önnur frá Fjórðungsþingi fiski- deilda í Austfirðinga- fjórðungi og hin frá Fiskideild Vestmanna- eyja, og verða báðar þessar ályktanir birtar hér á eftir, fyrst frá Aust- firðingum og síðan frá Vestmannaeyingum. Alyktun Fjórðungsþings fiskideilda í Austfirðingafjórðungi ' • ,,Unnið verði af fullum krafti við að auka og efla markaðsleit, fyrir íslenskar sjávarafurðir all- staðar sem því verður við komið. 2- Þau sölusamtök sjávarafurða, sem fyrir eru í landinu, vinni að því að koma á öflugu sölu- og markaðskerfi í Evrópu, Afríku og víðar, og trYggi þar með öruggari sölu og markaði. ÞJtanríkisráðuneytið styðji jafnframt útflutn- ingssamtökin við frekari markaðsleit og upplýs- ingaþjónustu betur og meira en verið hefur til þessa.“ Alyktun Fiskideildar Vestmanneyja ,,Mjög mikilvægt er fyrir okkur að geta selt framleiðsluvörur okkar á sem flesta markaði og við verðum að gæta okkar á því að glata ekki mörkuðum, sem við höfum áður eignast. Við verðum að vera tilbúnir að fylgja mörkuðum baeði upp og niður og spenna verð á okkar framleiðsluvörum ekki það hátt upp, að mark- aðurinn geti ekki greitt slíkt verð og það er úti- lokað að hægt sé að flytja hina miklu verð- bólgu, sem hér er innanlands út úr landinu. Það verður að teljast eðlilegra að sá sjóður, sem í óag á að milda þær sveiflur, sem upp koma í markaðsmálum, starfi eins og honum er ætlað með lögum, en ekki eins og hann starfar í dag.“ I framhaldi þessara ályktana vil ég ræða nokkur atriði, þó sum þeirra séu alkunnar staðreyndir og önnur hafi komið hér fram áður, m.a. i inngangser- indi fiskimálastjóra. Það vill brenna við í almennri umræðu um sjáv- arútvegsmál að markaðsþátturinn víki nokkuð fyrir tali um veiðarnar og vinnsluna þó allir þessir þættir séu jafnmikilvægir. Þetta er kannske skilj- anlegt, bæði er að spenningurinn kringum veiði- mennskuna er enn ríkur þjóðfélagsþáttur og svo höfum við sem betur fer ekki þurft á seinni árum að takast á við langvarandi erfiðleika í markaðs- málum okkar þó sveiflur í verði og sölumöguleik- um einstakra tegunda hafi alltaf verið til staðar. íslensk sjávarvöruframleiðsla byggir markaði sína á stórum kaupendum með mikla greiðslugetu og öflugu og sérhæfð dreifingarkerfi. Talsvert af vörunni fer til frekari úrvinnslu í markaðslöndun- um og salan er háð langþróuðum neysluvenjum. Markaðssvið einstakra tegunda er því fremur þröngt og eins hefur vöruþróun hér á landi verið fremur takmörkuð. Langar flutningaleiðir okkar um sjóveg eingöngu hafa átt ríkan þátt í að skapa þessa stöðu og við höfum átt erfitt með að hagnýta okkar smærri markaði og smásöludreifingu í sama mæli og margar af samkeppnisþjóðum okkar. í veigamestu framleiðslugreinunum, freðfiski, saltfiski og skreið, er sölustarfsemi i höndum fárra en stórra samtaka framleiðenda sjálfra. Auk þess er saltsíld og lagmeti selt eingöngu af opinberum fyrirtækjum. Óhætt er að fullyrða að þetta fyrir- komulag hefur reynst þjóðinni heillavænlegt. Það hefur skapað traust viðskiptasambönd, það hefur reynst ódýrt i rekstri og það hefur komið í veg fyrir óeðlilega samkeppni og undirboð á mörkuðunum. Hitt er þó ekki vafamál að það er rétt sem fram kemur í ályktunum þeim sem ég las hér áðan, að alltaf má betur gera í öflun nýrra markaða. Því miður eru þó framleiðendur oftast illa í stakk búnir fjárhagslega til að sinna þessu hlut- verki. Átak í þessu efni yrði því að byggjast á sam- vinnu þeirra og rikisvaldsins, þar þarf að leggja fram vinnu og fjármuni og sýna hagkvæmni og þrautseigju ef árangur á að nást. Ef litið er á stöðu markaðsmála íslensks sjávar- útvegs í dag má sjá ýmsar blikur á lofti sem gætu táknað að erfiðleikatímabil væri framundan og að þær þrengingar stöfuðu bæði af innlendri og er- lendri þróun mála. Hin vísitölutryggða óðaverðbólga sem hér geisar með linnulausum tilkostnaðarhækkunum í fram- ÆGIR — 15

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.