Ægir - 01.01.1982, Side 58
2. Takmarkanir verði:
Jan/apríl: 45 dagar, þ. af 15 dagar í jan/febr.
Mai/ágúst: 60 dagar, þ. af 35 dagar í júlí/ág.
Sept/des.: 45 dagar
Samtals: 150dagar
3. í þorskveiðibanni skal leyfilegt hlutfall þorsks í
afla vera þannig:
5% í 40 daga
15% í 55 daga
30% i 55 daga
4. Eftir löndun hverju sinni skal tilkynnt til ráðu-
neytis með skeyti, hversu lengi togari lét af
þorskveiðum, hvert var hlutfall þorsks í afla og
í hvaða prósentuflokk veiðiferð falli.
5. Aðrar reglur t.d. um upphaf og lok tímabils,
siglingar með fisk til sölu erlendis, verði óbreytt-
ar frá fyrra ári.
6. Stundi loðnuskip netaveiðar eftir áramót, telst
sá tími er það notar til þessara veiða ekki sem
,,skraptími“, fari það síðar til togveiða.
7. Takmörkunardögum verði fjölgað eða fækkað
miðað við aflamagn i lok hvers viðmiðunar-
tímabils á undan.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð
um bann við þorskveiðum í net 1.—15. janúar n.k.
og mun næstu daga gefa út heildarreglugerð um
þorskveiðitakmarkanir togskipa. Verða reglurnar
um þær veiðar þá ítarlega kynntar i fréttatilkynn-
ingu.
Sjávarútvegsráðuneytið,
22. desember 1981.
REGLUGERÐ
nr. 674 um rétt sjómanna til ellilífeyris.
1. gr.
Hver sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða
lengur, skal eiga rétt til töku ellilífeyris frá og með
60 ára aldri, enda sé að öðru leyti fullnægt skil-
yrðum 11. gr. laga nr. 67/1971 um almannatrygg-
ingar.
Starfsár sjómanna skal í þessu sambandi miðast
við að sjómaður hafi verið lögskráður á íslenskt
skip eigi færri en 180 daga á ári að meðaltali í 25
ár.
Nú kemur í ljós að lögskráning hefur eigi farið
fram lögum samkvæmt eða gögn er hana varða eru
glötuð og er þá heimilt, eftir atvikum, að meta sjó-
ferðabækur eða önnur skrifleg sönnunargögn um
starfstíma sjómanns.
Nú er skriflegri sönnun um starfstíma sjómanns
ekki til að dreifa og er þá heimilt að meta til slíkrar
sönnunar vitnisburð tveggja valinkunnra manna
eða fleiri um starfstíma sjómanns. Slíkur vitnis-
burður verður að bera með sér hvar, hvenær og
hve lengi sjómennska sú var stunduð sem sönnunin
nær til.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 1. gr. laga nr.
30 26. maí 1981 um breyting á lögum um almanna-
tryggingar nr. 67/1971 með síðari breytingum og
öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
9. desember 1981.
Svavar Gestsson.
Stjórn Fiskifélags íslands
kosin á Fiskiþingi í nóv. 1981, til næstu
fjögurra ára.
Aðalmenn:
Már Elísson, fiskimálastjóri
Þorsteinn Gíslason, varafiskimálastjóri, Reykjavík
Ingólfur Arnarson, Reykjavík
Gunnlaugur Karlsson, Keflavík
Jón Páll Halldórsson, ísafirði
Kristján Ásgeirsson, Húsavík
Hilmar Bjarnason, Eskifirði
Sigurgeir Ólafsson, Vestmannaeyjum
Marteinn Jónasson, Reykjavík
Ingólfur Stefánsson, Reykjavík
Ríkharð Jónsson, Þorlákshöfn
Þorsteinn Jóhannesson, Gerðum
Varamenn:
Kristján Ragnarsson, Reykjavík
Eiríkur Tómasson, Grindavík
Jón G. Stefánsson, Flateyri
Angantýr Jóhannsson, Hauganesi, Eyjafirði
Hjalti Gunnarsson, Reyðarfirði
Hilmar Rósmundsson, Vestmannaeyjum
Óli Guðmundsson, Reykjavík
Jón Kr. Olsen, Keflavík
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, Reykjavík
Jónas Jónsson, Reykjavík
Framkvæmdastjórn Fiskifélags íslands skipa:
Már Elísson, fiskimálastjóri,
Þorsteinn Gíslason, varafiskimálastjóri,
Ingólfur Arnarson, ritari.
46 — ÆGIR