Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1982, Side 60

Ægir - 01.01.1982, Side 60
geta stundað sjó urðu menn að bera bátana á bakinu upp og ofan brattan sjávarkamb við hvern róður. Og sagan af bygg- ingu Brjótsins er á margan hátt dæmigerð fyrir þá baráttu, sem víða hefur orðið að heyja til þess að byggð héldist við og gæti vaxið og eflst á eðlilegan hátt. Útgerðarsaga Einars Guð- finnssonar er orðin ærið löng og þegar ókunnugir líta yfir hina miklu starfsemi fyrirtækja þeirra feðga gætu þeir ætlað, að allt hefði þetta gengið snurðulaust fyrir sig, verið samfelld gróða- saga. Við lestur bókarinnar kemur annað í ljós. Framan af átti Einar mjög á brattann að sækja og allt fram um 1940 virðist hann fyrst og fremst hafa bjargast á bjartsýninni og kjarkinum. Á kreppuárunum byggði hann nýja og stærri báta þegar aðrir gáfust upp og það kom honum vei þegar betur áraði. Og þá var hann aldrei seinn að grípa tækifærin er þau buðust, en jók útgerðina ár frá ári, lét smíða ný skip, reisti frystihús, síldarverksmiðju og svo koll af kolli. Þessi þáttur Einarssögu er einkar athyglis- verður frá sjónarhóli íslenskrar útgerðar- og atvinnusögu. Einar hefur gert út til veiða með flestum þeim veiðarfærum, sem notuð hafa verið hér við land, hann hefur gert út til veiða á flestum fisktegundum, sem hér hafa verið veiddar, hann hefur gert út flestar tegundir skipa til veiða og hann hefur hagnýtt sér flestar, ef ekki allar aðferðir við vinnslu og nýtingu afla. Útgerðarsaga Einars er þannig íslensk útgerðarsaga í hnotskurn og þeim mun lærdómsríkari sem hann hefur lengstum verið í fararbroddi um ýmsar nýjungar. Rekstur umsvifamikils útgerð- ar- og verslunarfyrirtækis mundi flestum mönnum ærið starf og það þótt þeir gengju ekki til allra verka, eins og Einar hefur gert. Allt um það hefur maðurinn þó sinnt mikið ýmsum störfum í þágu byggðarlagsins sem og í þágu sjávarútvegsins almennt. Saga Einars Guðfinnssonar er lærdómsrík. Hún er saga manns, sem byrjaði ævistarf sitt með tvær hendur tómar, en hefur hafist til virðingar af einum saman dugnaði og ósérhlífni. Hann hefur notað hverja stund sem gafst til vinnu og aldrei hik- að við að ganga að þeim verkum, sem vinna þurfti hverju sinni. Bolungarvík var það mikið happ er Einar Guðfinnsson fluttist þangað. Hann hefur skilið það, sem kannski alltof fáir atvinnu- rekendur hafa skilið, að hagur hans og byggðarlagsins fór sam- an. Þess vegna hefur Bolungar- vík breyst úr litlu sjávarþorpi í blómlegan bæ á sama tíma sem útgerð Einars hefur vaxið úr ein- um árabáti í eitt stærsta útgerð- arfyrirtæki landsins. Bókargerðin Skrásetjari Einarssögu, Ásgeir Jakobsson, er Bolvíkingur og þekkir því vel til sögusviðsins. Honum hefur tekist vel við samningu bókarinnar, lýsir öll- um aðstæðum af þekkingu og skilningi og tekst jafnframt að draga upp góða mynd af sögu- persónunni. Víða fléttar Ásgeir inn í frásögnina köflum, þar sem saga Einars er sett í víðara sam- hengi og er að því mikill fengur. Allt um það fær þó frásögn Einars að njóta sín til fulls og þótt undirritaður þekki ekki sögumanninn virðist sem málfar hans og frásagnarmáti komi vel fram í sögunni. Góðir kaflar, en helsti stuttir eru af sonum Einars og dætrum, en þau eiga ekki lítinn þátt í við- gangi fyrirtækjanna á síðari árum. Aftur á móti er ágætur kaflinn í bókarlok um eiginkonu Einars, Elísabetu Hjaltadóttur. Þar kemur skýrt fram, hve mikið starf hún hefur unnið um dagana þótt ekki færi alltaf í hámæli. Ekki sé ég ástæðu til þess að fara að agnúast hér útaf smá- atriðum sem betur mættu fara, prentvillum og öðru slíku. Eini galli bókarinnar er sá að hún er of stutt, maður vildi fá að vita miklu meira um Einar Guðfinns- 48 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.