Ægir - 01.05.1983, Blaðsíða 65
r yr'r mælingar á álagi í amperum hefur verið
'naö út frávik (+ eða -4-) töflumælis frá fjöl-
1 smælinum í prósentum, fyrir sérhverja mæl-
faf|U Unurit 1 sýnir frávikið í % sem fall af hlut-
j s e§u álagi sem keyrt var á í viðkomandi mæl-
8u. Sem dæmi ef álag í mælingu er 20 KW og
1 taUinn er gefinn upp fyrir 100 KW er hlutfalls-
jn ' ala§ 20%. Frávik reyndist í flestum tilvikum
j v'ú 5%. Rétt er að taka það fram að spennan
fjöU tUm var einnig borin saman með töflumæli og
Sviðsmæli, en þar reyndist frávikið óverulegt.
Eins
niæii
°g sést á línuritinu skiptast samanburðar-
ne'k n^ar Um 0"Punictinn> en þó heldur fleiri með
e 1 Vætt frávik, þ.e. töflumælir sýnir lægra gildi
Jölsviðsmælirinn.
ntið' A^ess ad mæia eyðslustuðul hjálparvélanna
rricer vi(^ framleidda kílovattstund eru notuð
ltæki sem lýst er hér á eftir:
Se 'Unotkunin í 1/klst er mæld með mæliglasi,
§i^ðfur mæliskala frá °-250 ml (mynd 4)- Mæli'
tjj^ 1 tengist olíulögn að vél í gegnum barka með
br eyrandi lokum. Ef um er að ræða vél með
akveftS*U°iÍUÍíer^ fordælu, sem heldur
^ae num þrýstingi að oliuverki, en umfram
bakrmnU Veitt aftur 1 daghylki, er
v;ð ennslislögnin tengd fæðilögninni vélarmegin
ast mæli§lasið. Affalli frá eldsneytislokum er oft-
þgj^610 í fæði- eða bakstreymislögn vélanna, en i
i sb tllvikum þar sem það er ekki gert, er því veitt
akt mæliglas og magn þess þannig ákveðið.
Mynd 4. Búnaður til mœlinga á brennsluolíunotkun hjálpar-
véla. Skýringar við mynd: Daggeymir (1); mœliglas (2); kúlu-
lokar (3); otíuverk (4); mótþrýstiloki (5); hjálparvél (6); rafall
(7).
Til mælinga á raforkuframleiðslu riðstraumsraf-
ala eru notaðir kílóvattstundamælar af svipaðri
gerð og rafveiturnar setja upp hjá notendum í
landi. Þessir mælar eru gerðir fyrir þriggja fasa
kerfi án miðtaugar og eru þeir tengdir stofnlögn
frá rafal með straumspennum. Aflestur af mæli
þarf því að margfalda með hlutfalli viðkomandi
straumspenna. Þegar um er að ræða jafnspennu er
notaður fjölsviðsmælir Tæknideildar af gerðinni
Hioki 3105, sem áður er lýst.
Mælingar fara þannig fram, þegar lokið er við
að koma mælitækjum fyrir, að viðkomandi vél er
keyrð þar til kælivatn hefur náð eðlilegu hitastigi.
Því næst er olíunni veitt í mæliglasið með breyt-
ingu á stöðu loka, og þegar glasið er fullt er lokað
fyrir aðstreymi frá daghylki að vél og mæliglasi en
vélin tengd mæliglasinu. Tími er síðan tekinn
meðan vélin eyðir ákveðnu magni úr mæliglasinu,
oftast er miðað við 200 ml. Samtímis er raforku-
framleiðslan mæld, með tímatöku á tilteknum
snúningafjölda á skífu KWH-mælis, þegar um rið-
straumskerfi er að ræða. Þegar mælt er í skipum
með jafnstraumskerfi er mæling á raforkufram-
leiðslu einfaldari, þ.e. mældur straumur og spenna
með fjölsviðsmælinum.
Til að fá upplýsingar um hvernig eyðslustuð-
ullinn breytist með álaginu eru a.m.k. þrjú álags-
ÆGIR — 281