Ægir - 01.11.1985, Qupperneq 7
Þorsteinn Gíslason,
f'skimálastjóri:
Setning 44. Fiskiþings
Raðherra, ágætu þingfulItrúar
°8 aðrir gestir.
Eg býð ykkur öll velkomin til
Fiskiþings. Sérstaklega býð
e8 velkomna nýja fulltrúa, sem
nú.sitja Fiskiþing í fyrsta sinn.
Eg vil minnast hér þriggja
. aga okkar sem látist hafa á
ar|nu, þeirra Magnúsar Gamal-
|elssonar útgerðarmanns Ólafs-
'rði er lést 3. janúars.l., Helga B.
enónýssonar útgerðarmanns
ra ^esturhúsum í Vestmannaeyj-
Urn sem lést 18. ágúst s.l. og Ein-
ars Guðfinnssonar útgerðar-
I^anns í Bolungarvík, en hann
est 29. október s.l.
Magnús Gamalíelsson fæddist
a Flraunum í Fljótum 7. október
y9. Magnús hóf sjósókn ungur
a árum, 24 ára gamall gerðist
ann formaður á bát frá Ólafs-
'rúL 1928 hóf hann þar eigin
gerð og fiskverkun sem hann
j-a st&an af miklum dugnaði og
farnsýnL Magnús hóf snemma
• sLipti af starfsemi Fiskifélags
s ands, 1942 Var hann fyrst kos-
inn á Fiskiþing og sat þar í 30 ár
og í stjórn félagsins í mörg ár.
Þeir, sem þar kynntust Magnúsi
dáðust mjög að málflutningi hans
íöllu þeim málumerhann barðist
fyrir á sviði sjósóknar og fisk-
vinnslu enda byggði hann á
mikilli reynslu. Hann var ein-
lægur og sannur Fiskifélagsmað-
ur.
Helgi Benónýsson fæddist á
Stóru Drageyri í Skorradal. 23.
apríl árið 1900. Ungur að árum
aflaði Helgi sér menntunar til
landbúnaðarstarfa og vann
framan af æfi við þau störf. Hann
gerðist útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum 1938 og rak þar
lengi útgerð. Hann var trúnað-
armaður F.í. frá 1951-67. Full-
trúi á Fiskiþingi 1953- 67 og var
formaður fiskideildarinnar í Vest-
mannaeyjum um langt árabil.
Helgi var traustur málsvari sinna
atvinnugreina bæði í ræðu og riti.
Einar Kristinn Guðfinnsson
fæddist 17. maí 1898 að Litlabæ
í Ögurhreppi í N.-ísafjarðarsýslu.
Hann hóf kornungur sjósókn og
var formaður við ísafjarðardjúp
um hríð. Hann hóf vélbátaútgerð
í Hnífsdal 1921, og stofnsetti
eigið útgerðar- fiskverkunar- og
verslunarfyrirtæki í Bolungarvík
1924. Einar var formaður fiski-
deildanna á Vestfjörðum um
margra ára skeið, sat Fiskiþing
frá 1940-1975 og í stjórn Fiskifé-
lags íslands í mörg ár. Okkur sem
áttum því láni að fagna að kynn-
ast höfðingjanum Einari Guð-
finnssyni varð það hollur skóli.
Með þessum félögum okkar
eru horfnir svipmiklir persónu-
leikar, ógleymanlegir þeim er
kynntust. Þeir settu sterkan svip á
samtíðina og mörkuðu ákveðin
spor íslenskum sjávarútvegi til
heilla.
Frá því seinasta Fiskiþing var
haldið í byrjun nóvembermán-
aðar 1984 hafa 8 íslenskir sjó-
menn látist við skyldustörf sín.
Bið ég viðstadda að rísa úrsætum
í virðingarskini við hina látnu.
Á fjórðingsþingum og aðal-
fundum fiskideilda undanfarnar
vikur hefur farið fram kjör þing-
fulltrúa til næstu fjögurra ára.
Ýmsir félagar okkar, sem starfað
hafa með okkur undanfarin ár,
sumir í áraraðir, hafa ekki gefið
kost á sér til endurkjörs. Ýmist
vegna aldurs eða af öðrum ástæð-
um. Égflytþeim þakkirokkarfyrir
vel unnin störf í þágu Fiskifélags-
ins og sjávarútvegsins og þá sem
koma í þeirra stað býð ég vel-
komna.
Starfsemi Fiskifélags íslands er
tvíþætt. Félagslega er það sjálf-
stæð stofnun, Landsfélag alls sjáv-
arútvegsins. Samkvæmt lands-
lögum veitir félagið hinu opin-
bera margvíslega þjónustu og er
tengiliður stjórnvalda og sjávar-
útvegs. Þetta starf er framkvæmt í
hinum 7 starfsdeildum félagsins.
Að þessu leyti er félagið opinber
stofnun og heyrir undir sjávarút-
vegsráðuneytið.
Aðild að félagsmálastarfinu er
í hinum ýmsu fiskidei Idum sem er
að finna í 55 verstöðvum landsins
og mynda fjórðungssambönd og
sambandsdeildir. Seinustu tvö
árin höfum við orðið varir við
vaxandi starfsáhuga í deildum.
Erindrekar og starfsmenn félags-
ins hafa farið og blásið að
glæðum í líflitlum deildum og
stofnað nýjar í 11 verstöðvum,
aðallega á Vesturlandi og Húna-
ÆGIR-619