Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1985, Blaðsíða 16

Ægir - 01.11.1985, Blaðsíða 16
Hverjar eru horfur um viðgang fiskstofna? Hjálmar Vilhjálmsson: • Góðir Þingfulltrúar! Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum, þegar skýrsla Hafrannsóknastofnunar- innar um ástand nytjastofna og útlit og horfur var lögð fram fyrir svo sem 3-4 vikum. Er það nýmæli að hún sé svo snemma á ferðinni auk þess sem þar er nú í fyrsta sinni kafli um ástand sjávar, þörungagróður og átu. Þá var reynt að horfa 2—3 ár fram í tím- ann að því er varðar helstu nytja- stofna. Áformað er að freista þess að halda þessum vinnubrögðum í framtíðinni auk þess sem ástands- skýrslur munu verða tilbúnar til endurskoðunar eftir því sem nýjar upplýsingar berast, t.d. við lok vetrarvertíðar og eftir að stofnmælingu botnfiska eða svokölluðu togaraverkefni er lokið hverju sinni. Eg mun ekki fjölyrða hér um ástandsskýrsluna nýju, enda hefur innihald hennar verið kynnt á fjölmörgum fundum víða um land og flestir því kunnugir efni hennar að meira eða minna leyti. Þó þykir mér rétt að rekja helstu efnisatriðin og byrja á umhverfis- þættinum. Umhverfið Island er á mörkum hlýrra og kaldra hafstrauma. Sunnan úr hafi kemuratlantískurhlýsjórupp að landinu, sem streymir norður með Vesturlandi inn á norðurmið og jafnvel allt í kringum landið þegar vel árar. Norðan úr höfum kemur kaldur pólsjór, sem streymir um Grænlandssund og djúpt fyrir Norður- og Austur- landi. Við erum því óþægilega nærri mörkum hins byggilega heims. Sunnan- og vestanvert við landið er ætíð atlantískur hlýsjór og hitastig hans og selta breytist fremur lítið frá ári til árs, en norðanlands- og austan er annað uppi á teningnum. Á 40 ára tímabilinu frá 1925— 1965 gætti mjög hlýsjávar við landið og sveiflur frá ári til árs virðast hafa verið tiltölulega litlar miðað við það sem síðar varð. Árin 1965-1971, svonefnd hafís- ár, breyttist ástandið til hinsverra og kom þá pólsjórinn í stað Atlantssjávar. Á árunum 1972- 1974 varð svo nokkurt lát á flæði pólsjávar og gáfu mælingar þá von um að kuldatímabilið væri liðið hjá. Segja má að undanfarin 10-15 ár höfum við búið við meiri sveiflur í ástandi sjávar á íslandsmiðum en dæmi voru til á 40 ára skeiðinu 1925-1965. I skýrslunni er dregin sú ályktun að kuldaárin svo og sveiflutímabiIiö sem þeim fylgdi hafi haft mikil áhrif á plöntusvifog átu á íslands- miðum. Þessar sveiflur segja síðan til sín ofar í fæðukeðjunni svo sem fram hefur komið í vexti ogviðgangi nytjastofna. Þau umskipti til hins betra, sem hófust á árinu 1984, héldu áfram á þessu ári eins og mönnum er kunnugt. Talið er að útbreiðsla hlýsjávar í vor hafi verið nieð mesta móti miðað við undan- gengin 20 ár. Óvenjumikil áta var bæði austanlands og vestan en umskiptin urðu ekki eins mikil uti af Norðurlandi. Að öllu saman- lögðu er dregin sú ályktun að umhverfisskilyrði nytjastofnanna í hafinu við ísland vorið 1985 hafi að mörgu leyti verið sambærileg við ástandið á hlýju árunum fyr'r 1965. Vegna hinna miklu breytinga sem orðið hafa frá ári til árs að undanförnu treystu menn sér þo ekki til að spá um framvinduna a árinu 1986. Þær rannsóknir sem hingað til hafa farið fram benda þó ekki til þess að kaldi sjórinn sé að færast í aukana, Á hinn bóginn bendir ekkert til að sveifl utímabi I i 10-15 síðustu ára sé lokið. I næstu viku verður farið í ser- stakan sjórannsóknaleiðangur umhverfis landið til að kanna ástand sjávarað vetrarlagi. Vænt- anlega verður það enn kannað i febrúar og þá fæst vonandi vis- bending um hvernig ára mum sumarið 1986. Þorskurinn í ástandsskýrslunni er gert rá fyrir því að veiðistofninn, þ.e.a.s- 4 ára þorskur og eldri, hafi í upP' hafi ársins 1985 verið um 940.000 tonn. Þetta er um 10% hærri tala en fram kom í skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar tra 628-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.