Ægir - 01.11.1985, Síða 24
framleiða náttúrlegar afurðir á
tímum sívaxandi mengunar. Á
því sviði er vissulega þörf rann-
sókna þó ekki sé nema til að geta
sýnt og sannað að okkar fiskur sé
ómengaður og heilnæmur.
Á þessu ári hafa birst nokkrar
greinar í læknaritum um hollustu
fisks og sífellt fjölgar þeim sem
telja fisk almennt séð holla og
Ijúffenga fæðu sé til hráefna og
matreiðslu vandað. Því er lag til
að vekja áhuga erlendis á aukinni
fiskneyslu. Á þessu sviði gætum
við skapað okkur sérstöðu þar
sem fiskurinn við ísland er minna
mengaður en víða annars staðar.
Aukefni ættu í flestum tilfellum
að vera óþörf við vinnslu á fiski
hérlendis enda vilja margir forð-
astnotkun þessaraefna. Hlutverk
stofnunarinnar í þessari þróun er
að veita upplýsingar um næring-
argildi fisks og heilnæmi en hafa
ber í huga að rannsóknir á því
sviði geta verið bæði flóknar og
tímafrekar.
Af framansögðu er Ijóst að
mjög mikilvægt er orðið að hafa
nýjustu upplýsingar um matvæla-
löggjöf viðskiptalanda okkar því
að kröfur aukast og eftirlit vex
víða. Nýlega gerði stofnunin
samning um notkun á breskum
tölvubanka sem geymir upplýs-
ingar um matvælalöggjöf við-
skiptalanda okkar að Austur-Ev-
rópulöndum undanskildum.
6. Tölvutækni:
óþrjótandi möguleikar
Á tækni og tölvusviðinu eru
óþrjótandi möguleikar. Margir
kannast við tilraunir sem Sölu-
miðstöðin hefur látið gera með
tæki sem getur flokkað síldar-
hrygnur frá hængum. Hvað með
tæki sem gæti flokkað síld eða
loðnu eftir fituinnihaldi þannig
að velja mætti feitasta fiskinn úr?
Þá má nefna rannsóknir á því að
skera fisk með hárfínni vatnsbunu
undir miklum þrýstingi en með
þeirri tækni gætu opnast mögu-
leikar fyrir sjáfvirkar tölvustýrðar
skurðvélar.
Þegar fiskur er metinn hvort
heldur hann er ferskur, frosinn,
saltaður eða hertur þarf að henda
reiður á miklu upplýsingamagni.
Við skoðun á flökum þarf t.d. að
skrá fjölda orma, beina, blóð-
bletta, meta litblæ, frostþornun
o.s.frv. Ein af mótbárunum gegn
því að taka upp hliðstætt mat á
ferskum fiski, svokallað punkta-
mat, var sú að því fylgdi of mikil
skriffinnska og útreikningar fyrir
matsmennina. Unnt er að smíða
handhægt tæki sem matsmenn
gætu haft með sér og skráð með
auðveldum hætti allar þessar
upplýsingar, reiknað úr þeim og
prentað matsnótu.
Tækið þyrfti að geta geymt í
minni forskrift að mati á þeim
fisktegundum og afurðum sem
unnið er við hverju sinni. Sölu á
tækinu erlendis myndu fylgja for-
rit sniðin að kröfum kaupandans
ásamt nauðsynlegri sérfræðiráð-
gjöf og þjálfunarnámskeiðum.
Þess má geta að nú fyrir skömmu
bárust stofnuninni heimildir um
að í Ástralíu hafi þegar tekist að
smíða fyrstu gerð slíks tækis.
Rannsóknastofnunin -
sjálfseignastofnun ?
Þessi dæmi eru nefnd hér til að
minna á að enginn skortur er á
rannsóknaverkefnum í sambandi
við fiskiðnað og greinum
tengdum honum. Og þá er komið
að mikilvægu atriði. Smáþjóð
sem vertakmörkuðu fjármagni til
rannsókna- og þróunarstarfsemi
geturekki keppt við stórþjóðirnar
á öllum sviðum tækni og vísinda.
Við verðum að velja rannsókna-
svið og verkefni af mikilli kost-
gæfni ef árangur á að nást. Hér á
landi hafa fiskiðnaðarrannsóknir
allt frá upphafi nær eingöngu
verið stundaðar á Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins en upp-
runi stofnunarinnar er rakinn allt
aftur til ársins 1934. Var hún
lengst af hluti af Fiskifélagi
íslands eins og mönnum er
kunnugt. Árið 1965 var Rann-
sóknastofu Fiskifélags íslands
breytt í ríkisstofnun með lögum
um rannsóknir í þágu atvinnu-
veganna. Nú eru 37V2 heimiluð
stöðugildi á stofnuninni en starfs-
mannafjöldi hefur þó jafnan verið
mun meiri. Hefur þá komið til
lausráðið starfslið sem hefur þá
verið fjármagnað með tekjum
fyrir þjónustumælingar. Um
helmingur starfseminnar felst í
efna- og gerlagreiningum á
sýnum auk tæknilegrar ráðgjafa-
þjónustu, námskeiðahalds og
útgáfustarfsemi. Þannig eru rúm-
lega 20 ársverk í þjónustumæl-
ingum og önnur 20 í eiginlegum
rannsóknaverkefnum. Þjónustu-
mælingar hafa aukist jafntog þétt
og allt útlit er fyrir að svo verði
enn um sinn. Auknar kröfur um
ýmiss konar mælingar valda þar
mestu um svo og aukinn áhugi
fyrirtækja og samtaka þeirra a
gæðamálum og vöruþróun.
Á undanförnum árum hafa
orðið breytingar á því með hvaða
hætti rannsóknaverkefni eru
valin. Áður komu verkefnin mest
fram að frumkvæði starfsmanna
stofnunarinnar. Nú koma þau
mörg hver til vegna samvinnu við
iðnaðinn eða eru umbeðin. Fyrir
þessi verkefni greiðir iðnaðurinn
að hluta. Árið 1984 var unnið að
rannsóknaverkefnum í samvinnu
við 16 fyrirtæki og samtök. Eng-
inn vafi leikur á því að þau verk-
efni sem iðnaðurinn tekur þátt i
skila sér best hvað snertir notkun
rannsóknaniðurstaðna. Að taka
fjárhagslegan þátt í verkefni er
viss trygging fyrir því að rann-
636-ÆGIR