Ægir - 01.06.1990, Blaðsíða 40
324
ÆGIR
6/90
liti með reglum settum samkvæmt
heimild í þeim lögum skulu þeir
fylgjast með löndun, vigtun og
vinnslu afla, enn fremur útflutn-
ingi afla eða afurða eins og nánar
er kveðið á í lögum þessum, reglu-
gerðum settum samkvæmt þeim
og í erindisbréfi.
Eftirlitsmönnum er heimilt að
fara í veiðiferðir með fiskiskipum
og að fara um borð í skip til athug-
unar á farmi og veiðarfærum. Enn
fremurskal þeim heimill aðgangur
að öllum vinnslusölum fiskverk-
ana og birgðageymslum.
18. gr.
Ráðherra skal með reglugerð
ákveða sérstakt gjald - veiðieftir-
litsgjald — fyrir veiðiheimildir sem
veittar eru á grundvelli laga þess-
ara eða annarra laga er kveða á
um stjórn fiskveiða. Skal gjaldið
renna til reksturs veiðieftirlits
ráðuneytisins og skal upphæð
þess miðast við að það standi
undir rekstri eftirlitsins að hálfu.
Gjald vegna tilkynningar um
aflamark skal miðast við áætlað
verðmæti þess aflamarks sem út-
hlutað er. Skal ráðherra árlega
áætla hlutfallslegt verðmæti ein-
stakra tegunda í þessu skyni. Aldrei
skal gjald samkvæmt þessari máls-
grein vera hærra en 0,2% af áætl-
uðu verðmæti þess afla sem afla-
mark skips heimilar veiðar á, á
komandi fiskveiðiári, vertíð eða
veiðitímabili. Gjald fyrirhverja til-
kynningu um aflamark skal þó
aldrei vera lægra en 1.000 kr. og
er sú fjárhæð grunntala er miðast
við byggingarvísitölu í janúar
1991 og breytist í hlutfalli við þær
breytingar sem síðar kunna að
verða á henni.
Fyrir veitingu almenns leyfis til
veiða í atvinnuskyni og veiðileyía,
sem veitt verða á grundvelli 2.
mgr. 4. gr., skal greiða 5.000 kr.
Ráðherra er heimilt að hækka
gjaldið er nemur hlutfallslegri
hækkun er kann að verða á vísi-
tölu byggingarkostnaðar, sbr. 1.
nr. 42/1987. Grunntaxti gjaldsins
er miðaður við byggingarvísitölu í
desember 1989, þ.e. 157,9 stig.
Útgerð skips skal greiða fæði
veiðieftirlitsmanna og sjá þeim
endurgjaldslaust fyrir aðstöðu
meðan þeir stunda eftirlitsstörf um
borð.
IV. KAFLI
Viðurlög o.fl.
19. gr.
Brot gegn ákvæðum laga þess-
ara, reglum settum samkvæmt
þeim eða ákvæðum leyfisbréfa
varða sektum nema þyngri refsing
liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Um mál þau, sem rísa út af
brotum gegn lögum þessum, skal
fara að hætti opinbera mála.
20. gr.
Ráðuneytið skal beita ákvæðum
laga nr. 32 19. maí 1976, um
upptöku ólöglegs sjávarafla,
vegna brota gegn þessum lögum
eftir því sem við á.
Ráðuneytinu er enn fremur
heimilt, vegna brota á ákvæðum
laga þessara, reglna settra sam-
kvæmt þeim og leyfisbréfa, að
svipta skip heimild til veiða í til-
tekinn tíma og varða veiðar eftir
leyfissviptingu m.a. upptöku skv.
1. mgr. Sama gildir verði vanskil á
greiðslu andvirðis ólöglegs sjávar-
afla sem sætt hefur upptöku.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
21. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga nr.
81 31. maí 1976, með áorðnum
breytingum, skulu veiðar með
vörpu heimilaðar á vannýttum
fisktegundum á ákveðnum svæð-
um samkvæmt reglum er ráðherra
setur.
22. gr.
Með lögum þessum eru felldar
úrgildi 10., 13. og 14. gr. laga nr.
81 31. maí 1976, um veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands. Jafnframt
breytist 2. mgr. 2. gr. þeirra laga
og orðist svo:
íslenskum skipum eru bannaðar
veiðar með botnvörpu og fl°|'
vörpu í fiskveiðilandhelginni/
nema þar sem sérstakar heimild'r
eru veittar til slíkra veiða í lögum
þessum.
23. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi °8
koma til framkvæmda 1. janúar
1991. Ákvæði, er lúta að veiðum
á öðrum tegundum sjávardýra en
botnfiski, koma til framkvæmda
við upphaf fyrstu vertíðar eða
veiðitímabils eftir 1. janúar 1991 ■
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Við ákvörðun aflahlutdeildar
við gildistöku laga þessara 11
veiða á botnfiski og úthafsraskju
fyrir skip 10 brl. og stærri ska
leggja til grundvallar úthlutun
aflamarks á árinu 1990 samkvæmt
rg. nr. 585 19. desember 1989/
um stjórn botnfiskveiða 1990,
rg. nr. 586 19. desember 1989,
um veiðar á úthafsrækju 1990.
Fyrir hvert fiskiskip 10 brl. °§
stærra skal reikna aflamark í e,n
stökum botnfisktegundum og ut
hafsrækju til þorskígilda. Ráðherra
skal með reglugerð ákveða ver
mætahlutfall við þann útreikning-
Fyrir hvern sóknarmarksflokk/sam
kvæmt rg. nr. 585 19. desember
1989 skal síðan reikna meðalta s
aflamark þessara tegunda sarnan
lagt. Fyrir þau skip, sem
samanlagt aflamark ofan
hafa
við
meðaltal síns flokks, er aflamar
hverrar tegundar á árinu 1990 ra
andi við ákvörðun aflahlutdeildar-
Fyrir þau fiskiskip, sem ha a
samanlagt aflamark þessara teg
unda undir meðaltali síns sóknar
marksflokks, skulu hins vejj^r
reiknaðar uppbætur á eldra at ‘