Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1992, Blaðsíða 17

Ægir - 01.06.1992, Blaðsíða 17
1992 LOÐNUVEIÐAR 17 ^8ja öllum verðhækkunum verð- ®kkanir aftur. Á seinustu árum ^etur verð sojamjöls lítið breyst. ^jskmjöl hefur aftur á móti verið a hækka og verðmunur þarna á ni1 li hefur aukist verulega. Á- s ®ða þessa er fyrst og fremst sú a fiskmjöl er ekki lengur framleitt °8 selt eins og áður sem „bulk" .ara, heldur er framleiðslan kom- n yfir í mismunandi tegundir af jöli fyrir mismunandi notkun. Getur eitt fyrirtæki haft á boðstól- um milli tíu og tuttugu tegundir fiskmjöls. Mynd 2 sýnir verðþróun búk- lýsis borið saman við samkeppn- isafurðirnar soja- og pálmaolíur yfir sama tímabil og mjölið. Á myndinni sést verðhækkunin sem varð á sama tímabili og í mjölinu árið 1987 og fram á mitt ár 1988. Á síðustu árum hefur búklýsið dregið verulega á jarðolíurnar og verðmunur á þessum afurðum minnkað. Er ástæðan sú að lýsið er notað til sérhæfðari framleiðslu en áður var og því minna háð verði samkeppnisafuróanna. Fyrirframsölur íslenskra loðnu- verksmiðja, sérstaklega á loðnu- mjöli, af framleiðslu væntanlegrar loðnuvertíðar voru oft verulegar seinni hluta árs. Verksmiðjurnar nutu þá gjarnan hækkandi afurða- verðs. Eins og sýnt er á mynd 3, sem er samantekt á fiskmjöls- og lýsisverði úr fyrri myndum en nær yfir skemmra tímabil, þá fer verð gjarnan hækkandi á haustin og fram að áramótum, en fellur þá fram á mitt ár. Á allra seinustu árum hafa þessar fyrirframsölur minnkað sérstaklega vegna þess að haustveiðar okkar hafa gengið illa og einnig vegna þess að inn- kaupamynstur notenda hefur breyst í þá veru að þeir kaupa nú meira eftir notkun á hverjum tíma. Verðþróun mjöls og lýsis á síð- ustu loðnuvertíð er sýnd sérstak- lega á mynd 4. Tröppugangur í aukningu íslenska loðnukvótans er sýndur, en horfur og veiði hafa veruleg áhrif á verð loðnuafurða frá íslandi, eins og áður er vikið að. Verð á íslensku loónumjöli og -lýsi fór hækkandi á seinni hluta ársins. Féll verö ótrúlega vel sam- an, þ.e. mjöl í pundum hvert tonn og lýsið í dollurum hvert tonn. Er verðþróun þeirra því teiknuð sem einn ferill á mynd 4. Á heims- markaði hækkaði fiskmjöl og lýsi einnig. Fiskmjöl vegna gífuriegra kaupa Kínverja en lýsið vegna skorts á vörunni. Er þessi þróun einnig sýnd á myndinni. Náði verðið hámarki um áramótin. ís- lenskar loðnuverksmiður voru fjarri góðu gamni og gátu lítið selt á þessum tíma vegna óvissu um magn loðnu sem veiða mætti eftir áramótin. Vertíðirnar á undan höfðu margar verksmiðjur átt í erf- iðleikum með að uppfylla samn- inga vegna loðnubrests og fóru

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.