Ægir - 01.12.1992, Blaðsíða 22
630
ÆGIR
12/92
4. gr.
Akvæði 2. mgr. 3. gr. laga nr.
32/1978, um hlutafélög, með
áorðnum breytingum, gilda ekki
um tölu stofnenda í hlutafélaginu.
Ákvæði 1. mgr. 17. gr. og 2. tölul.
1. mgr. 115. gr. sömu laga gilda
ekki um tölu hluthafa. Að öðru
leyti skulu ákvæði hlutafélagalaga
gilda um félagið.
5. gr.
Hlutabréf í félaginu, útgefin í
tengslum við stofnun þess, skulu
undanþegin stimpilgjöldum.
Matsverð þeirra fyrnanlegu
eigna, sem félagið yfirtekur frá
Ríkismati sjávarafurða skv. 1. gr.,
telst fyrningargrunnur eigna, sbr.
lög nr. 75/1981, um tekjuskatt og
eignarskatt.
6. gr.
Stofnfund nýja hlutafélagsins
skal halda fyrir lok desembermán-
aðar 1992 og skal félagið taka til
starfa 1. janúar 1993. Á stofn-
fundinum skal leggja fram drög
að stofnsamningi og samþykktum
fyrir félagið.
7. gr.
Sjávarútvegsráðherra annast fyr-
ir hönd ríkisstjórnarinnar undir-
búning að stofnun félagsins, þar
með talda skipan matsnefndar,
sbr. 1. gr.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
24. nóvember 1992.
REGLUGERÐ
um bann við
dragnótaveiðum á
Seyðisfirði.
1. gr.
Frá og með 4. desember 1992
til og með 31. janúar 1993 eru
allar dragnótaveiðar bannaðar á
Seyðisfirði innan línu sem dregin
er frá Borgarnesi í Skálanes.
2. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar
þessarar varða viðurlögum sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 81, 31.
maí 1976, um veiðar í fiskveiði-
landhelgi Islands. Með mál út af
brotum skal farið að hætti opin-
berra mála.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 81. 31.
maí 1976, um veiðar í fiskveiði-
landhelgi íslands til þess að öólast
þegar gildi og birtist til eftirbreytni
öllum þeim, sem hlut eiga að
máli.
2. desember 1992.
VELAVARÐARN AM
með fjarkennslusniði, í samráði við
VÉLSKÓLA ÍSLANDS.
Verklegi hlutinn tekinn í framhaldsskólum
Sigl ingafræði einnig í boði.
Bréfaskólinn
Sími 91-629750