Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1992, Síða 22

Ægir - 01.12.1992, Síða 22
630 ÆGIR 12/92 4. gr. Akvæði 2. mgr. 3. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, með áorðnum breytingum, gilda ekki um tölu stofnenda í hlutafélaginu. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 115. gr. sömu laga gilda ekki um tölu hluthafa. Að öðru leyti skulu ákvæði hlutafélagalaga gilda um félagið. 5. gr. Hlutabréf í félaginu, útgefin í tengslum við stofnun þess, skulu undanþegin stimpilgjöldum. Matsverð þeirra fyrnanlegu eigna, sem félagið yfirtekur frá Ríkismati sjávarafurða skv. 1. gr., telst fyrningargrunnur eigna, sbr. lög nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt. 6. gr. Stofnfund nýja hlutafélagsins skal halda fyrir lok desembermán- aðar 1992 og skal félagið taka til starfa 1. janúar 1993. Á stofn- fundinum skal leggja fram drög að stofnsamningi og samþykktum fyrir félagið. 7. gr. Sjávarútvegsráðherra annast fyr- ir hönd ríkisstjórnarinnar undir- búning að stofnun félagsins, þar með talda skipan matsnefndar, sbr. 1. gr. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. 24. nóvember 1992. REGLUGERÐ um bann við dragnótaveiðum á Seyðisfirði. 1. gr. Frá og með 4. desember 1992 til og með 31. janúar 1993 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á Seyðisfirði innan línu sem dregin er frá Borgarnesi í Skálanes. 2. gr. Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 81, 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiði- landhelgi Islands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opin- berra mála. 3. gr. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 81. 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiði- landhelgi íslands til þess að öólast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. 2. desember 1992. VELAVARÐARN AM með fjarkennslusniði, í samráði við VÉLSKÓLA ÍSLANDS. Verklegi hlutinn tekinn í framhaldsskólum Sigl ingafræði einnig í boði. Bréfaskólinn Sími 91-629750

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.