Ægir - 01.02.1993, Blaðsíða 7
Höfundur átti þess kost að heimsækja
Chile í byrjun septembermánaðar á síðasta
ári í boði landssamtaka laxeldisbænda,
„Associación de Productores de Salmon y
Trucha de Chile“. Tilgangur ferðarinnar
var sá að sækja aðalfund alþjóðasamtaka
framleiðenda í laxeldi, ISFA, og ekki síst að
kynnast laxeldinu í Chile.
Alþjóðasamtökin ISFA voru stofnuð
árið 1985 og eru nú fulltrúar allra landa
sem framleiða lax, að undanskildu Japan,
aðilar að samtökunum. Fulltrúar frá öllum
aðildarlöndum nema frá Irlandi mættu á
fundinn. Af Islands hálfu er Landssamband
fiskeldis- og hafbeitarstöðva aðili að sam-
tökunum og hefur verið það frá árinu
1987.
Chile er áhugavert land og þess vegna
rétt að fjalla lítillega um það, atvinnuvegi
þess og efnahag áður en gerð verður grein
fyrir laxeldi í landinu.
IImSHÉttœm
& ‘m? Jíz.
Fagurt landslag, hóir fjallgarðar, djúpir og lygnir firðir einkenna loxeldissvœðin í Chíle.
2. TBL, 1993 ÆGIR 61