Ægir - 01.02.1993, Side 28
Flutningur á aflakvóta
milli landssvæða- og útgerðarstaða árið 1992
A yfirliti hér á efiir er sýndur flutningur aflakvóta milli einstakra útgerðarstaða ogþeir dregnir
saman í landshlutaskiptingu. Athuga ber aðflutningur innan hvers landsvceðis er einnig reiknaður
með. Hér er um leigukvóta að ræða, en ekki varanleg kvótaskipti sem gœtu breytt niðurstöðunni.
Suðurland
Alls varð nettóflutningur aflakvóta
botnhsks inn á Suðurlandssvæðið á
árinu 1992 sem nam 2.380 þorsk-
ígildistonnum. Mest fluttist á svæðið
af karfa eða 3.518 tonn. Er það
skiljanlegt vegna nálægðar við karfa-
mið. Hinsvegar fluttust um 1.115
tonn af ufsa frá Suðurlandi. Um
2.347 tonn af úthafsrækju fluttust af
svæðinu. Til Suðurlands teljast
Vestmannaeyjar til og með Þorláks-
höfn.
Reykjanes
Mikil aukning botnfiskkvóta átti
sér stað á svæðinu en alls fluttust tæp
9.332 þorskígildistonn á Reykjanes
umfram það magn sem fluttist frá
því. Langmest fór af þorski á svæðið
eða um 5.680 tonn umfram flutning
frá svæðinu. Einnig varð umtals-
verður flutningur af grálúðu á svæðið
eða um 1.817 tonn. Alls nam til-
flutningur úthafsrækjukvóta um
1.185 tonnum, sern skýrist væntan-
lega af nýtingu loðnuflotans á út-
hafsrækju fyrir norðan. Til Reykja-
ness telst Grindavík til og með
Reykjavík.
Vesturland
Ysa, ufsi, karfi og grálúða fóru af
svæðinu en um 869 tonn af þorski
fóru á svæðið umfram flutning frá
því. Svipað magn botnfiskkvóta fór á
svæðið sem og frá því, en urn 100
tonn nettó fóru af svæðinu. Hinsveg-
ar varð talsverð aukning á úthafs-
rækjukvóta umfram flutning kvóta af
svæðinu. Til Vesturlands telst Akra-
nes til og með Reykhólar.
Vestfirðir
Athygli vekur kvótamissir Vest-
firðinga, en alls fóru um 684 þorsk-
ígildistonn af svæðinu. Af þorski fóru
á svæðið um 454 tonn umfram flutn-
ing frá því, en um 413 tonn af ýsu-
kvóta fóru af svæðinu, 241 tonn af
ufsakvóta og 523 tonn af karfa. Um
604 tonn af grálúðu fóru af svæðinu,
en um 175 tonn af skarkola fór á
svæðið. Til Vestfjarða teljast Brjáns-
lækur til og með Hólmavík.
Norðurland vestra
Talsverður flutningur af botnfisk-
kvóta var af svæðinu. Þannig fóru
5.170 þorskígildistonn af svæðinu.
Mest fór af karfa um 2.676 tonn og
2.271 tonn af grálúðu. Um 406 tonn
af úthafsrækju fóru á svæðið umfranr
flutning frá svæðinu. Til Norður-
lands vestra telst Hvammstangi til og
með Siglufjörður.
Norðurland eystra
Um 3.024 þorskígildistonn fóru
af svæðinu umfram flutning á svæð-
ið. Mest fór af þorski um 3.240
tonn, hinsvegar voru um 1.826 tonn
af ufsa keypt á svæðið umfram flutn-
ing frá því. Talsvert af úthafsrækju-
kvóta fóru á svæðið eða um 1.381
tonn. Til Norðurlands eystra telst
Olafsfjörður til og með Þórshöfn.
Austurland
Alls fóru unt 2.662 þorsk-
ígildistonn af svæðinu umfram flutn-
ing á svæðið. Mest fór af þorski um
3.685 tonn, hinsvegar fluttist nokk-
uð af ýsukvóta eða um 559 tonn a
svæðið. Um 2.092 tonn af úthafs'
rækjukvóta fóru af svæðinu. Aukning
varð í karfakvóta svæðisins eða um
281 tonn og grálúðukvóta um 615
tonn, sömuleiðis jókst skarkolakvoti.
82 ÆGIR