Ægir - 01.02.1993, Blaðsíða 40
úrulegra dauðsfalla. Ef merkingatil-
raunir uppfylla viss skilyrði er hægt
að nota þær til að reikna bæði nátt-
úrulega dánartíðni og veiðidánar-
tíðni. Til að það sé hægt er þó æski-
legt að merkingartilraunirnar hafi
gengið í nokkur ár. Við getum þó til
að byrja með notað endurheimtur
sem hlutfall af merktum fiski til að
áætla veiðidánartíðni, en með fyrir-
vara um ýmsa þætti sem valda óná-
kvæmni. Til dæmis er erfitt á hverj-
um tíma að áætla með nákvæmni
hversu margir þorskar eru eftir í sjón-
um úr hverri merkingu og hversu
háu hlutfalli af endurheimtum
merkjum er skilað til okkar. Veiði-
dánartíðni sem áætluð er á þennan
hátt er því algjört Iágmark og hún
gæti verið ntun hærri.
lafla 2 sýnir endurheimtur í pró-
sentum fyrir ýmis tímabil. Fyrsta
tímabilið nær yfir eitt ár, frá og með
maí 1991 til og með apríl 1992.
Næst er 9 mánaða tímabil frá júní
1991 til febrúar 1992 með báðum
mánuðunum meðtöldum. Þar næst
apríl 1992 einn sér og Ioks 7 rnánaða
tímabil, frá maí 1992 til nóvember
1992, en á því tímabili eru endur-
heimtur frá merkingum 1992 farnar
að skila sér.
Ef Iitið er á töflur 1 og 2 þá er
mjög áberandi hversu mismikið
veiðist af merkta þorskinum eftir árs-
tíðum og sker aprílmánuður sig úr
bæði í Gunnólfsvík og Stöðvarfirði.
Töluverður munur er á hlutfalli end-
urheimta í Gunnólfsvík og Stöðvar-
firði í apríl 1992 eða 10% á móti
14%. Þessar tölur benda til þess að
hærri dánartíðni sé vegna veiða á
þeim þorski sem merktur var í Stöðv-
arfirði vegna þess að ólíklegt er að
menn skili síður merkjum sem sett
hafa verið í þorsk á öðrum staðnum
frekar en hinum.
Sé litið á tímabilið frá júni til febr-
úar þá er hlutfallslegur fjöldi endur-
heimta sá sami hvort sem unt er að
ræða þorsk úr Stöðvarfirði eða Gunn-
ólfsvík og er veiðidánartíðni á þessum
fiski á þessu tímabili mjög lág, eða
sem samsvarar 10 til 20% ntiðað við
ársveiði. Sé litið á tímabilin mars til
maí breytist endurheimtuhlutfall af
merktum þorski innan þess tímabils
þannig að í Stöðvarfirði 16-faldast
endurheimtur miðað við meðaltal
endurheimta mánuðina á undan og í
Gunnólfsvík 10-faldast endurheimt-
urnar miðað við sömu tölu.
Tryggð við
hrygningarsvœði
Eins og fram hefur komið er eitt
af aðalmarkmiðum þessara merk-
ingadlrauna að kanna hvort þorskur
sem hrygnir á ákveðnu svæði snúi
aftur til sama svæðis til hrygningar
árið eftir.
Eins og töflur 1 og 2 sýna jukust
endurheimtur úr merkingunum í
Stöðvarfirði ’91 og Gunnólfsvík ’91
mjög á hrygningartíma ári seinna,
þegar þorskurinn kom ’inn á hrygn-
ingarsvæðin. Þannig komu fram í
mars - apríl 1992, 98 merki úr
merkingunni Stöðvarfjörður ’91. Af
þeim fengust 52 merki inni á Stöðv-
arfirðinum sjálfum. I apríl 1992
komu frani 44 merki úr Gunnólfsvík
’91 en af þeim fengust 30 endur-
heimtur í Gunnólfsvíkinni sjálfrt-
Þetta kernur einnig fram á myndum
1 og 2 en þær sýna fjölda merktra
fiska sem endurheimtust í mismun-
andi fjarlægð frá merkingarstað yfir
árið. Svo virðist sem fiskurinn sé að
nálgast hrygningarsvæðin í mars og
sé aðallega á hrygningarsvæðununt '
apríl. Sá þorskur sem endurheimtist
utan hrygningarsvæðanna í apríl gi’"
annaðhvort verið að nálgast þau eða
fara frá þeinr en um slíkt er óntögU'
legt að fullyrða.
Mikill meirihluti merkja á hrygU'
ingartíma fæst á hrygningarsvæðinu
þar sem merking fór frant. Hér verð'
ur að benda á að nokkuð er unr end-
urheimtur í næstu fjörðum við merk'
ingastaðina þótt það sé aðeins lítið
brot af því sem fengist hefur á rnerk'
ingarstað á sama tíma. Hugsanlegt er
að þorskurinn sé að Ieita að ákveðnu
hrygningarsvæði og að sumir h'rrl
ekki á rétta staðinn í fyrstu atrennu-
Hitt er líka möguleg skýring nð
þorskurinn einskorði sig ekki við eUr
hrygningarsvæði, heldur fari torfiu''1'
ar að einhverju marki milli nálægra
hrygningarsvæða og hrygni ef til v>^
á fleiri en einum stað, sem eru í hæfi'
legri fjarlægð.
Tafla 2 Endurheimtur í prósentum fyrir ýmis tímabil
Stöðvar- fjörður ’91 Stöðvar- fjörður ’92 Gunnólfsvík ‘91 Gunnólfsvík ‘92
Maí ’91 - apríl ’92 26% - 18% -
Júní ’91 - febrúar ’92 7% - 8% -
Apríl ’92 14% - 10% -
Maí ’92 - nóvember ’92 8% 8% 7% 10%
94 ÆGIR 2. TBL. 1993