Ægir - 01.09.1993, Blaðsíða 4
ÚR FÓRUM
FISKIMÁLA
STJÓRA
U HALDA VÓKIISINHI
Nú á síöustu vikum hefur alveg
nýtt viðhorf komið fram hér á íslandi
til úthafsveiða. íslendingar hafa byrj-
að veiðar á rækju á hinum svokallaða
Flæmska hatti við Nýfundnaland með
ágætum árangri og síðan sigldi fríður
floti í Barentshafið, í Smuguna, nú í
ágúst, en með mjög misjöfnum ár-
angri. Það er ekki svo að við íslend-
ingar höfum ekki áður veitt á fjarlæg-
um miðum. Ekki þarf að fara nema
tvo til þrjá áratugi aftur í tímann til
að finna heimildir fyrir veiðurn okkar
í norðurhöfum, einnig eru eldri
mönnum í fersku minni veiðar ís-
lenskra togara við Austur-Grænland
og Nýfundnaland. Þegar við færðum
landhelgi okkar í 200 mílur töldum
við að innan hennar væru allir þeir
fiskstofnar sem við hugsanlega þyrft-
um að nýta til að getað lifað mann-
sæmandi lífi og ekki þyrfti að leita á
önnur mið. Nú hefur komið í ljós að
svo er ekki og fyrirsjáanlegt er að auk-
in sókn verður á fjarlæg mið sem svar
við sífellt minnkandi veiðikvótum hér
við ísland og sem verkefni fyrir af-
kastamikinn fiskiskipaflota sem er sá
tæknivæddasti í heiminum nú.
Það vakti þó athygli mína við lestur
á viðtali við Hlöðver Haraldsson skip-
stjóra á Hólmadrangi ST-70, í Fiski-
fréttum 3. sept. sl., að þar talar hann
um búnað íslensku togaranna og segir
m.a. að botntrollin séu allt of þunS
miðað við aðstæður sem eru í Barents
hafinu, þau hreinlega sökkvi í drull
una. Menn hér hafi hlegið að Fætey
ingunum og þeirra búnaði sem var all
ur rnikið léttari og skipstjórar het
töldu smábátatroll. Einnig seg11
Hlöðver að afla verði meiri þekking31
á þessu hafsvæði og veiðum á því sV°
menn geti vænst þess að geta stundaö
veiðar þar með einhverjum árangrn
Þetta minnir okkur á að þrátt fyrir
það að við íslendingar eigum fuii
komnasta fiskiskipaflota í heinri og
séum vel settir með menntaða skip
stjórnarmenn, þá verða þeir eins og
aðrir að reka sig á og afla sér reynsl11
eigi árangur að nást. Það er einmg
ljóst að íslendingar munu á næstu
árum sækja út, ekki bara til veiða a
fjarlægum miðum heldur líka á svið1
vinnslu og sölu sjávarafurða. Því er
nauðsynlegt að efla sem mest þehk
ingu og rannsóknir á þessum nrála
flokkum og ekki síður að afla reynsW-
Við erum þegar byrjaðir á öllum þeSS
um sviðum, árangurinn er misjafn °S
verður það til að byrja með. En höld
um ótrauðir áfram og missum eisi;1
móðinn því árangurinn skilar sér f>'rr
en varir.
Bjami Kr. Grímsson.
I<VA<TABANI<INN
Látib fagmanninn vinna verkin
Sími 91-656412 • Fax 91-656372 • Jón Karlsson
370 ÆGIR SEPTEMBER 1993