Tímarit lögfræðinga - 01.01.1958, Blaðsíða 39
Hugmyndin um liandhægt norrænt jdirlits- og saman-
burðarrit um allsherjarrétt, einkanlega ríkisrétt, er ekki
njT af nálinni. Hafa þvílík rit verið gefin út áður fyrr,
þótt á þrengra sviði væri, svo sem Den nordiske statsret
eftir Aschehoug og Den nordiska förvaltningsrátten eftir
Blomberg, en báðar þær bækur komu út á níunda ára-
tug nitjándu aldarinnar. Eru þau rit því löngu úrelt
orðin. Norræna embættismannasambandinu hefur um
langt skeið verið það mikið áliugamál, að slíkt rit væri
tekið saman, og hefur þá m. a. verið haft í huga, að
það gæti orðið einskonar handbók fyrir norræna stjórn-
sýslumenn, sem oft þurfa á að halda vitneskju um til-
högun stjórnsýslu í nágrannalandi.
Er það barst út, að prófessor Herlitz hefði í hyggju
að semja lieildarrit um „nordisk offentlig rátt“, var þeirri
fregn af skiljanlegum ástæðum tekið tveim höndum.
Lýsti stjórn embættismannasambandsins yfir sérstöku
fylgi við hið fyrirhugaða verk, með því að tilnefna einn
fulltrúa frá hverju landi, sem verið gætu prófessor Her-
litz til ráðuneytis um þau efni, er hann vildi undir þá bera.
Þessir fuiltrúar hafa verið Bent Cliristensen lektor frá
Danmörku, W. A. Palme prófessor frá Finnlandi, Jo-
hannes Dannevig skrifstofustjóri frá Noregi og undirrit-
aður frá Islandi.
Eins og áður er sagt, eru nú komin út af þessu fyrir-
hugaða ritverki tvö fyrstu bindin. Eru þau: Nordisk of-
fentlig rátt I — Historisk inledning — og Nordisk offentlig
rátt II — Riksdagarna och tingen.
Fyrra bindið hið sögulega vfirlit — er einkarfróð-
legt. Er þar rakin þróun ýmissa réttaratriða í hverju
landi fyrir sig, gerð grein f}Trir hvað þeirri þróun sé sam-
eiginlegt og hvað skilji þar á milli. Þar er m. a. fjallað
um þróun konungsveldis og landsstjórnarliátta, og gerð
grein fyrir þvi, livernig embættaskipan og sýslana komst
smám saman í fast horf, enda þótt með sérstökum
hætti vrði í hverju landi. Þar er og gerð grein fyrir þró-
Tímarit lögfrœSinga
37