Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Page 6
Við Árni kynntumst fyrst 1941 og var ég samstarfsmaður hans fyrstu starfs-
ár mín. Af Árna lærði ég margt sem ég get ekki fullþakkað. Þótt breytingar
yrðu á störfum héldum við alltaf kunningsskap og samskiptum. Þó varð
nokkur breyting á eftir að hann gekk í utanríkisþjónustuna. Sambandi héld-
um við þó til hinstu daga hans.
Árni var vörpulegur maður á velli og bar sig vel. Hann kunni vel að vera
með höfðingjum, eins og sagt var að fornu. Höfðingi var hann heim að sækja.
Skapgerð hvers manns er ofin úr mörgum þáttum. Árni var listhneigður, lék
vel á slaghörpu og var drátthagur. Þrátt fyrir mikið veraldarvafstur hygg ég
að honum hafi liðið best þegar hann dvaldi í Suðurkoti og gat setið á bökk-
um Sogsins með teikniblokkina sína og rissað upp það sem hann sá og
skynjaði.
Árni var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðbjörg Pálsdóttir. Þau slitu sam-
vistum. Börn þeirra eru Tryggvi framkvæmdastjóri og myndlistarmaður og
Arndís bókasafnsfræðingur og húsmóðir.
Siðari kona Árna var Sigrún Ögmundsdóttir. Þau voru barnlaus.
Öllum ástvinum Árna flyt ég samúðarkveðju mína persónulega og íslenskra
lögfræðinga. Benedikt Sigurjónsson
JÓHANN SKAPTASON
Jóhann Skaptason, fyrrverandi sýslumaður
Þingeyjarsýslu og bæjarfógeti Húsavíkur, lést
17. október sl. á heimili sínu að Túni á Húsa-
vík, 81 árs að aldri. Hafði hann þá gegnt sýslu-
mannsembætti í tæp 40 ár, alla tíð af einstakri
trúmennsku, festu og reglusemi.
Jóhann Skaptason fæddist að Litlagerði í
Grýtubakkahreppi 6. febrúar 1904. Foreldrar
hans voru Skapti Jóhannsson, bóndi þar, og
og kona hans, Bergljót Sigurðardóttur. Faðir
Jóhanns féll frá aðeins fertugur að aldri. Var
Jóhann þá á fjórða ári, einn sjö systkina, sem
móðir þeirra stóð uppi með. Þrátt fyrir fátækt
tókst Jóhanni að brjótast til mennta. Lauk hann
gagnfræðaprófi á Akureyri vorið 1921. Á árun-
um 1924-27 var hann í hópi nokkurra ungmenna,
sem réðust í að lesa fyrir stúdentspróf við Gagnfræðaskólann á Akureyri. Vor-
ið 1927 fór hópurinn til Reykjavíkur og luku allir stúdentsprófi utan skóla frá
Menntaskólanum í Reykjavik þá um vorið. Sumarið eftir fékk Gagnfræðaskól-
inn á Akureyri leyfi til að útskrifa stúdenta.
Haustið 1927 settist Jóhann Skaptason í lagadeild Háskóla íslands og lauk
embættisprófi í febrúar 1932. Hóf hann síðan störf hjá Olíuverslun íslands, en
1935 fór hann utan til frekara náms. Lagði hann stund á þjóðarétt i Manchester
á Englandi og síðan f Kaupmannahöfn. Hefði það nám ef til vill orðið lengra,
212