Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Síða 8
Sem embættismaður var Jóhann Skaptason formfastur, en formið byrgði
honum þó ekki sýn yfir kjarna hvers máls. Þvt fór fjarri, að hugsun hans og
sjóndeildarhringur væri þröngur. Lagadóma Jóhanns Skaptasonar virðast
menn í héraði yfirleitt hafa sætt sig við, því að þeim var sjaldan skotið til
Hæstaréttar.
í raun var Jóhann Skaptason óvenjusjálfstæður maður í hugsun, en það
lýsti sér m.a. í því, að þrátt fyrir strangt og háleitt siðamat afneitaði hann þeim
lúterisma, sem boðaður er í kirkjum landsins. Honum var mjög umhugað um
að varðveita menningarverðmæti hvers konar, hvort heldur voru góðir siðir
almennt eða hinn þjóðlegi arfur, sem við höfum tekið við frá forfeðrunum.
Jóhann Skaptason var mjög vel ritfær. Til vitnis um það má nefna þrjár
árbækur Ferðafélags íslands, sem Jóhann skrifaði. f þeim gefur hann mjög
svo lifandi lýsingu á Barðastrandar- og Suður-Þingeyjarsýslum.
Þökkuð eru góð kynni og vinátta Jóhanns Skaptasonar á liðnum árum.
Sigurður Gizurarson
ÞORMÓÐUR ÖGMUNDSSON
Þormóður ögmundsson, lögfræðingur, and-
aðist í Vífilsstaðaspltala að morgni dags 25.
september 1985 á 76. aldursári. Hann hafði um
nokkurt skeið kennt sjúkdóms þess, er dró hann
til dauða.
Þormóður Ögmundsson fæddist að Sjávar-
götu í Stokkseyrarhreppi í Árnessýslu 17. febrú-
ar 1910, sonur hjónanna Jónínu Margrétar
Þórðardóttur og Ögmundar Þorkelssonar,
kaupmanns á Eyrarbakka.
Á unglingsárum fluttist Þormóður með fjöl-
skyldu sinni til Reykjavíkur og hóf nám í
Menntaskólanum í Reykjavík. Þormóði sóttist
námið vel, og lauk hann stúdentsprófi vorið
1931 með I. einkunn. Settist hann þá um haust-
ið í lagadeild Háskólans og lauk þaðan prófi
með mjög góðri einkunn í febrúar 1937. Hinn 30. júní 1937 réðst hann til lög-
fræðistarfa I Útvegsbanka íslands og varð síðar, eða á árinu 1955, yfirmaður
lögfræðideildar. Aðstoðarbankastjóri Útvegsbankans var hann ráðinn á árinu
1967 og starfaði sem slíkur, þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir í lok
árs 1980.
Þormóður ávann sér traust stjórnenda bankans, og var honum því oft falið
að gera tillögur um lausn vandasamra mála, sérstaklega þegar um lögfræði-
leg vandamál var að ræða. Sennilega var það eitt stærsta verkefnið, sem
honum var falið, þegar hann vann að uppgjöri og skýrslugerð, er bankinn var
gerður að ríkisbanka með lögum frá 1957. Það var ekki einungis, að Þormóð-
ur ávann sér traust stjórnenda bankans, heldur vann hann einnig traust og
virðingu samstarfsmanna sinna. Honum voru falin ýmis trúnaðarstörf af þeirra
214