Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Blaðsíða 58
Steingrímur Gautur Kristjánsson, borgardómari, frá Dómarafélagi islands.
Nefndin skilaði áliti í maí 1985 og var það sent viðskiptaráðherra.
Tímarit lögfræðinga er þróttmikið nú sem endranær. Ritstjóri þess, Jónatan
Þórmundsson, prófessor, mun segja fáein orð um tímaritið síðar á þessum
fundi. Ég þakka ritstjóranum fyrir störf hans á síðastliðnu ári í þágu tímarits-
ins og félagsmanna.
Spencer Williams, alríkisdómari í Kaliforníu, sem flutti fyrirlestur á fundi í
félaginu í apríl 1984, hefur lagt til, að stofnað verði til námsdvalar fyrir unga
islenska lögfræðinga eða laganema við bandaríska alríkisdómstóla. Er hug-
mynd Williams sú, að nokkrir íslendingar verði ráðnir sem „special law clerks“
um tiltekinn tíma. Nokkur bréf hafa farið á milli Williams og stjórnar félagsins
um þetta mál. Stjórnin hefur lýst áhuga á að koma hugmyndinni f framkvæmd,
en undirbúningur er skammt kominn.
Samskipti við Bandalag háskólamanna voru nokkur á starfsárinu, eins og
undanfarin ár. Afskipti Lögfræðingafélagsins af starfsemi BHM eru þó minni
en áður var, vegna þess að félagið tekur ekki lengur beinan þátt í samningum
um kjaramál. Félagið á dálitinn hlut í sameignarfélaginu Ásbrú, sem er eig-
andi 3. og 5. hæðar í Lágmúla 7, en BHM er þar til húsa. Fulltrúi félagsins í
stjórn Ásbrúar er Valgeir Pálsson. Fulltrúi félagsins í ráði sjálfstætt starfandi
háskólamanna er Hafþór Jónsson, framkvæmdastjóri L.M.F.Í., en Jón Ingi-
marsson, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, skipar sæti
félagsins í öldungaráði BHM.
Samstarf stjórnarmanna hefur verið mjög gott. Allir þeir, sem sitja í stjórn-
inni með mér, hafa unnið félaginu vel og enginn dregið af sér. Ég þakka þeim
öllum fyrir skemmtilegt samstarf. Guðrún Erlendsdóttir og Þorgeir Örlygsson
hverfa nú úr stjórn, og eru þeim færðar sérstakar þakkir fyrir mikið starf f
þágu félagsins. Arn|jótur Bjömsson
264