Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Síða 28
Að þessu loknu er kveðinn upp meðlagsúrskurður samkvæmt 1. mgr.
15. gr. bl.
3.1.2. Skilnaður eða sambúðarslit
Samkvæmt 24. gr., sbr. IV. kafla og 38. gr. bl., ber við skilnað for-
eldra eða við slit óvígðrar sambúðar að taka afstöðu til forsjár barna
og greiðslu framfærslueyris (meðlags) með þeim.13 í 24. gr. bl. kem-
ur að vísu ekki fram að reglum IV. kafla bl. eigi að fylgja við slit
óvígðrar sambúðar. I framkvæmd er engu að síður sömu reglum fylgt
að mestu leyti. Meðferð mála er þó frábrugðin í einstökum atriðum,
eftir því hvort um er að ræða skilnað eða slit óvígðrar sambúðar og
er því haganlegt að fjalla um það hvort í sínu lagi.
3.1.2.1. Skilnaður
Leyfi til skilnaðar að borði og sæng samkvæmt 31. gr. hjl. veita
bæjarfógetar eða sýslumenn utan Reykj avíkur og lögreglustjórinn á
Keflavíkurflugvelli, en í Reykjavík yfirborgardómari, sbr. 1. mgr. 43.
gr. hjl. Skilnað að borði og sæng samkvæmt 32. gr. hjl. og lögskilnað
samkvæmt 34. - 42. gr. hjl. veitir dómsmálaráðuneytið.
I öllum tilfellum snúa aðilar sér til framangreindra sem valdsmanna
með kröfu um skilnað. Ef aðilar eru sammála um skilnaðinn og öll
skilnaðarkjör, þ.m.t. greiðslu meðlags með börnum, gefur viðkomandi
valdsmaður út skilnaðarleyfi. Ef hjón hafa ekki gert með sér skrif-
legan samning um öll skilnaðarkj ör, þegar valdsmaður tekur mál þeirra
fyrir, er samkomulag þeirra bókað í svokallaða hjónaskilnaðarbók og
það staðfest af viðkomandi valdsmanni. I skilnaðarleyfi kemur síðan
m.a. fram athugasemd um það að samkomulag sé um greiðslu með-
lags. Með þessum hætti er fullnægt því skilyrði 21. gr. bl. að sam-
komulag um framfærslueyri sé því aðeins gilt að það sé staðfest af
valdsmanni. Þegar staðfest samkomulag liggur fyrir með þessum hætti
getur sá, sem hefur forsjá barns og stendur straum af útgjöldum
vegna framfærslu þess, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins. Nán-
ar verður rætt um hlutverk hennar hér á eftir.
Ef hjón eru ósammála um að skilja eða um skilnaðarkjör er ágrein-
ingi vísað til dómsmálaráðuneytisins, sem gefur ekki út skilnaðar-
leyfi fyrr en ágreiningur hefur verið leiddur til lykta, annaðhvort með
samkomulagi eða úrskurði ráðuneytisins.14 Þetta á að sjálfsögðu einn-
ig við ágreining um greiðslu meðlags. Það er athyglisvert að við þess-
13 Sjá ennfremur 31. gr. hjl.
170