Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Side 35
eyri í einu lagi langt fram í tímann, jafnvel meðan framfærsluskylda
varir. Er þá gert ráð fyrir að fé það sem greitt er sé varðveitt með
tilteknum hætti, annað hvort með þeim hætti er greinir í 38. gr. lög-
ræðislaga nr. 68/1984 um fé ófjárráða manna eða með kaupum á verð-
tryggðum ríkisskuldabréfum.
Áður en skilist er við tilhögun á greiðslu meðlags er rétt að benda
á 5. mgr. 73. gr. atl., þar sem fram kemur að Tryggingastofnun sé
heimilt að greiða meðlag allt að 12 mánuði aftur í tímann, enda liggi
fyrir að raunveruleg samvistarslit hafi staðið svo lengi, þótt ekki hafi
verið gerður reki að því að krefjast skilnaðar fyrr, eða eftir atvikum
að tilkynna um sambúðarslit, og meðlagsskyldur aðili hefur ekki sinnt
framfærsluskyldum sínum á þeim tíma. 1 5. gr. áðurnefnds frumvarps
til breytinga á barnalögum frá 1987 er gert ráð fyrir að 1. mgr. 15. gr.
bl. verði breytt til samræmis við þetta, þannig að óheimilt verði að
ákvarða framfærslueyri samkvæmt ákvæðinu lengra en 12 mánuði aft-
ur í tímann, nema alveg sérstaklega standi á,18a
Samkvæmt 2. tl. 3. gr. 1. 14/1905 fyrnast kröfur um meðlag á 4
árum. Þess ber að gæta að hér getur eingöngu verið um að ræða kröfu
þess er meðlagið á að fá á hendur meðlagsskyldum aðila, enda fyrnast
endurkröfur vegna þegins sveitarstyrks ekki, sbr. 3. mgr. 1. gr. sömu
laga, en telja verður að endurkrafa Innheimtustofnunar sveitarfélaga,
eða eftir atvikum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, á hendur meðlagsskyld-
um aðila sé einmitt af því tagi.19
3.3. Tengsl erfðaréttar og tilkalls til meðlags
I barnalögum er ekki vikið að þessu álitaefni. Þó fer ekki á milli
mála að búi framfærsluskylds aðila er skylt að svara til meðlagsins
allt til þess tíma er andlát hins framfærsluskylda bar að höndum. Ef
eftirlifandi maki meðlagsskylds foreldris hefur fengið leyfi til setu í
óskiptu búi hefur verið litið svo á að honum beri að svara til meðlags-
greiðslna. Byggist þetta aðallega á 12. gr. erfðalaga nr. 8/1962, sbr.
2. ml. 7. gr. 1. 48/1989, um breytingu á þeim lögum, þar sem fram
kemur að maki sem situr í óskiptu búi beri ábyrgð á skuldum hins
látna sem um hans eigin skuldir væri að ræða. Ef ekki er um setu í
óskiptu búi að ræða eða skipti fara fram eftir andlát hins langlífara
lýkur tilkalli til meðlags og erfðatilkall tekur við.20 Á hinn bóginn eru
hagsmunir barna sem missa meðlagsskylt foreldri fyrst og fremst
18a Alþt. A 1987, s. 1647.
19 Sjá H 1954,433 og 1987,473 þar sem vikið er að fyrningu.
20 Ármann Snævarr: Barnaréttur, Reykjavík 1987, s. 86—87.
177