Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Blaðsíða 42
4. SÉRSTÖK FRAMLÖG
I IV. og V. kafla bl. er í nokkrum ákvæðum gert ráð fyrir að hægt
sé að úrskurða meðlagsskyldan aðila til meðlagsgreiðslna eða sérstakra
framlaga umfram það sem beinlínis kemur fram í 15. gr. bl. Sá munur er
á þessum heimildum að framlög samkvæmt þeim ákvæðum sem fram
koma í IV. kafla eru ætluð barni til framfærslu, en þau sem fram
koma í V. kafla, nánar tiltekið í 25. og 26. gr., tilheyra móður.
4.1. Menntunarmeðlag samkvæmt 1. mgr. 17. gr. bl.
Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. bl. lýkur framfærsluskyldu þegar barn
verður 18 ára eða þegar ungmenni giftist yngra, nema valdsmaður
ákveði annað. Síðan segir: „Framlag til menntunar eða starfsþjálf-
unar barns er heimilt að ákveða allt til þess, er barn nær 20 ára
aldri.“
Orðið „menntunarmeðlag" kemur ekki fyrir í lögunum, en er gjarn-
an notað af þeim sem um þessi mál fjalla í framkvæmd. I lögunum
eru notuð orðin „framlag til menntunar eða starfsþjálfunar“, sbr.
einnig 73. gr. atl.
Venjulega er það ungmennið sjálft sem gerir þessa kröfu, þrátt
fyrir 2. mgr. 23. gr. þar sem menntunarmeðlagið er ekki undanskilið.
Þetta er eðlilegt í ljósi þess að 18 ára ungmenni eru að fullu lögráða
og meðlagið tilheyrir ungmenninu. I 7. gr. frumvarpsins frá 1987 er
lagt til að kveðið verði skýrar á um þessa heimild ungmennis.30a Valds-
maður (í Reykjavík yfirsakadómari) úrskurðar um greiðslu mennt-
unarmeðlags.
Skyldan til greiðslu menntunarmeðlags ræðst af tvennu, þ.e. þörf
ungmennis annars vegar og greiðslugetu meðlagsskylds foreldris hins
vegar. Kröfunni þurfa að fylgja vottorð um skólavist eða starfsþjálf-
un og skattframtal ungmennis. Þá er þeim sem krafinn er gefinn
kostur á að tjá sig um kröfuna. Einkum er tekið mið af því hversu
aflögufær hann er og við það mat tekið mið af tekjum samkvæmt
skattframtölum síðustu tvö árin, öðrum framfærsluskyldum sem á
honum kunna að hvíla og hugsanlega eigna- og skuldastöðu.
Ef fallist er á kröfu um menntunarmeðlag er venjulega miðað við
lágmarksmeðlag. I úrskurði er ennfremur tekið fram hversu lengi á
að greiða, en það þarf ekki að vera allan tímann frá 18 til 20 ára ald-
urs. I framkvæmd er litið svo á að heimilt sé að skjóta úrskurði valds-
30a Alþt. A 1987, s. 1648 og 1657.
184