Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Page 46
6. BARNALÍFEYRIR
6.1. Hvað er barnalífeyrir?
Um barnalífeyri er fjallað í 14. gr. atl., ásamt síðari breytingum.33
Ákvæðinu er skipað í II. kafla laganna sem fjallar um lífeyristrygg-
ingar. Samkvæmt 10. gr. atl. taka lífeyristryggingar til ellilífeyris,
örorkulífeyris, makabóta, barnalífeyris, mæðralauna, ekkjubóta og
ekkjulífeyris. I reynd má hins vegar segja að barnalífeyrir sé ein teg-
und meðlags, þ.e. í þeim skilningi að hann kemur í stað meðlags þegai’
ekki nýtur við meðlagsskylds foreldris, eða greiðslugeta þess er skert
af nánar tilgreindum ástæðum.
6.2. Hverjir eiga rétt á barnalífeyri?
Skv. 14. gr. atl. greiðist barnalífeyrir vegna barna yngri en 18 ára
sem svo er ástatt fyrir sem hér segir:
a. Annað foreldranna er látið. Réttur til barnalífeyris stofnast þó
ekki við fráfall stjúpföður eða stjúpmóður ef barn á meðlagsskylt
foreldri á lífi. Ef báðir foreldrar eru látnir greiðist tvöfaldur barna-
lífeyrir. (1. mgr.).
b. Annað foreldri er örorkulífeyrisþegi. Samkvæmt lögunum er
gert ráð fyrir að foreldri verði að vera a.m.k. 75% öryi’ki til
þess að réttur til barnalífeyris stofnist á grundvelli þessarar heim-
ildar og er það í samræmi við b-lið 1. mgr. 12. gr. atl. Ef báðir for-
eldrar eru örorkulífeyrisþegar greiðist tvöfaldur lífeyrir. Hverjir telj-
ist örorkulífeyrisþegar í þessum skilningi fer eftir lögum um almanna-
tryggingar hverju sinni (1. mgr.).
c. í 3. mgr. kemur fram að Tryggingaráð getur kveðið á um greiðslu
barnalífeyris með barni ellilífeyrisþega og barni manns sem sætir
gæslu eða refsivist, enda hafi vistin varað a.m.k. 3 mánuði. Vakin er
athygli á að hér er um að ræða heimild — en ekki skyldu — til handa
Tryggingaráði til að greiða barnalífeyri við þessar aðstæður. Þetta
þýðir að Tryggingaráð metur í hverju einstöku tilfelli hvort viðkom-
andi fær greiddan barnalífeyri. Ræðst það auðvitað fyrst og fremst
af því hvort viðkomandi aðilar geta séð sómasamlega fyrir barni sínu
eða ekki. Þegar um refsifanga er að ræða hefur Tryggingaráð túlkað
það svo að greiðsla barnalífeyris komi aðeins til greina þegar fangi
33 Breytingar á þessu ákvæði almannatryggingalaga nr. 67/1971 liafa verið tíðar, eins og
raunar á öðrum ákvæðum laganna. Tilvisun til 14. gr. í þessari grein felur einnig í sér
tilvísun til þeirra lagaákvæða sem breyta 14. gr., en þau eru: 3. gr. 1. 96/1971, 1. gr. 1.
85/1980, 1. gr. 1. 11/1982, 1. gr. 1. 25/1984 og 1. gr. 1. 23/1987.
188