Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Blaðsíða 50
7.2. Hvaða kröfur eru lögtakskræfar?
I 1. mgr. 28. gr. bl. er gert ráð fyrir að meðlag með börnum sam-
kvæmt úrskurði valdsmanns á grundvelli 1. og 3. mgr. 15. gr. bl. sé
lögtakskræft. Hið sama gildir um sérstök framlög samkvæmt 19. gr.,
25. gr. og 26. gr., sbr. 27. gr. bl. Þá er þess getið að meðlag á grund-
velli samnings sem valdsmaður hefur staðfest, sbr. 21. gr. bl., sé lög-
takskræft.
Það vekur athygli að ekki er skýrt tekið fram í bl. né atl. að mennt-
unarmeðlaginu fylgi lögtaksréttur.35 Engu að síður verður að telja
að slík heimild sé fyrir hendi, a.m.k. að því er varðar þann hluta sem
Tryggingastofnun ríkisins svarar til, sbr. 2. tl. 3. mgr. 5. gr. 1. nr.
54/1971 um Innheimtustofnun sveitarfélaga, en í 74 gr. atl. er gert
ráð fyrir að stofnunin innheimti þær kröfur sem Tryggingastofnun
hefur svarað til á grundvelli 73. gr. atl. og er menntunarmeðlagið þar á
meðal. Það er því ljóst að Innheimtustofnun sveitarfélaga nýtur þess
hagræðis við innheimtu sem lögtaksrétturinn er, þótt þess sé ekki
sérstaklega getið í barnalögum. Hins vegar er þetta ekki jafn Ijóst um
þann hluta menntunarmeðlagsins sem er umfram fjárhæð barnalífeyris
á hverjum tíma. I því sambandi vaknar sú spurning hvort 6. tl. 1. gr.
ltl. er nægileg heimild. Verður að telja að svo sé, enda rök fyrir því að
undanskilja beri menntunarmeðlagið með þessum hætti torfundin.
Það getur skipt máli í tveimur tilfellum hvort lögtaksréttur fylgir
umræddum kröfum: 1 fyrsta lagi þegar um er að ræða endurkröfu
Tryggingastofnunar á hendur greiðsluskyldum aðila og í öðru lagi
þegar Tryggingastofnun ríkisins svarar ekki til krafna að öllu
leyti. Hið síðarnefnda kemur einkum til greina ef aðilar hafa
t.d. samið um hærra meðlag með börnum en lágmarksmeðlag eða
valdsmaður úrskurðað hærra á grundvelli 1. mgr. eða 3. mgr. 15. gr.
í síðara tilfellinu nýtur rétthafi bótanna góðs af því að lögtaksrétt-
ur fylgir þeirri fjárhæð sem Tryggingastofnun svarar til.
7.3. Innheimtustofnun sveitarfélaga
Innheimtustofnun sveitarfélaga starfar samkvæmt 1. 54/1971. I 3.
gr. laganna segir að hlutverk stofnunarinnar sé að innheimta hjá með-
35 Sjá t.d. Ármann Snævarr: Barnaréttur, Reykjavík 1987, s. 85, þar sem bent er á þetta
án þess að það sé skýrt frekar. í 10. gr. frumvarpsins frá 1987 er lagt til að bætt verði
úr þessu og skýrt kveðið á um að menntunarmeðlaginu samkvæmt 1. mgr. 17. gr. fylgi
lögtaksréttur, sbr. Alþt. A 1987, s. 1648 og 1657.
192