Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1995, Blaðsíða 9

Ægir - 01.01.1995, Blaðsíða 9
Hákon í brúarglugga á Húnaröstinni. hrygningarstofn loðnunnar talsvert minni en áður var œtlað. Hins vegar er síldarstofhinn sterkur. Hvernig finnst nótamönnum fiski- frœðingar hafa staðið sig í því að vemda síld- ina og loðnuna? „Ég var einn þeirra sem tók þátt í því að reyna að drepa síðustu síldarnar 1968. Þá vorum við meðal annars að veiða hana hrognafulla hérna í Flóanum og ég held að við höfum allir verib fegnir þegar veiðarnar voru bannaðar. Það var ekki orðið neitt vit í þessu. Ég tel að menn séu almennt ánægðir með það hvernig fiskifræðingum hefur tekist að rækta upp síldarstofninn. Jakob Jakobsson er mikilhæfur maður að mínu áliti." En eru nótaskipstjórar eins ánœgðir með loðnuspár Hafrannsóknastofnunar og horf- umar í þeirn veiðum? „Loðnan er náttúrulega sérstakur fiskur og getur verið erfitt að átta sig á henni. Hún getur verið svo dreifð að enginn finnur neitt þó svæðið sé grandskoðað. Svo eftir nokkra klukkutíma hleypur hún saman og verður veibanleg. í fyrrasumar eltum vib hana langt noröur og veiddum vel en í sumar hagaði hún sér allt öbruvísi og dreifðist fyrir norðan í hlýja sjónum og virtist jafnvel veiðast upp á einstökum svæðum. Við erum með 8500 tonn eftir sumarið og erum með þeim hæstu. Við vorum heppnir að vera á réttum slóðum þegar loðnan gaf sig og vorum fyrst- ir til þess að fá afla. Það voru sárabætur fyrir ab við vorum svo seinir af stað að við misst- um af veiðinni í Síldarsmugunni. í Grænlandssundinu áttu skilyrði að vera góð fyrir loðnuna en þar voru aöstæður ein- kennilegar og erfiðar, mikill gróbur í sjónum og gífurlegur straumur og það lentu margir í bölvuðu havaríi. Það var geysilega stór floti sem var á mið- unum eftir að Norðmenn komu líka til veið- anna. Okkur sýndist að veiðin væri oft betri þegar færri skip voru á slóð- inni." Hvar er loðnan? Ertu þá bjartsýnn á komandi vetrarvertíð. Heldur þú að loðnan sé þama einhvers staðar? „Auövitað kemur hún greyiö, það er þá eitthvað mikið að ef hún hættir við hrygna. Á síðustu vetrarvertíð lönduðum við 17.700 tonnum frá 18. janúar til 10. apríl. Menn fara fljótlega að gá að henni þegar líður á mánuðinn því flotinn hefur ekkert að gera. Verksmiðjurnar hafa stundum styrkt skipin til leitar á þessum tíma. Það er ekki nógu mikið fylgst með loðnunni. Mér finnst að það mætti kannski líka gera það með minni og ódýrari skipum en þessum rannsóknaskipum." Er auðvelt að ná sér í aukinn loðnukvóta? „Það hefur verið kvóti af nokkrum skipum í umferð, bæði seldur og leigður. Þetta er kvóti af skipum sem hafa verið seld eða hætt veiðum. Þetta er dýrt spaug en við sem gerum út Húnaröstina höfum sett allan af- gang í þab að kaupa kvóta undanfarin ár." BOSCH ÞEGAR MEST Á REYNIR DIESELVERKSTÆÐI VARAHLUTAÞJÓNUSTA BRÆÐURNIR ORMSSON HF LÁGMÚLA 9 • SÍMI: 553 8825 ÆGIR JANÚAR 1995 9

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.