Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1995, Blaðsíða 28

Ægir - 01.01.1995, Blaðsíða 28
D.E.B. þjónustan: Meirí orka, David Butt á Akranesi hefur í þrjú ár haft umboð fyrir svonefndan Clean- burn brennsluhvata sem dregur úr eldsneytiseyðslu um 5%, dregur úr sót- myndun um 50% og eykur orku vélar um 4,5%. Þessar tölur þýða að olíu- kostnaður skuttogara með slíkan bún- að minnkar um milljón á ári og heild- arsparnaður þjóðarinnar næmi 350 milljónum árlega væru þessi tæki urn borð í öllum skipum. Búnaðurinn er einnig seldur í bifreiðar og hverskyns ökutæki sem brenna olíu eða bensíni og samanburðarrannsókn gerð á tveimur lyfturum hjá Eimskip í Sunda- höfn á tíu mánaða tímabili sýndi 18,6% minni olíueyðslu þess lyftara sem var með Cleanburn. Sparnaður í krónum talið var tæplega 85 þúsund krónur. Uppröðun sameinda auðveldar bruna Freistandi væri að halda að Islend- ingar hefðu tekið þessum búnaði opn- um örmum og nýtt sér þannig tæki- færi til sparnaðar og umhverfisvernd- ar. En vantrú manna er mikil og hægt hefur gengið að sýna íslenskum vél- stjórum fram á að kosti Cleanburn. Cleanburn brennsluhvatinn er settur inn á eldsneytislögnina sem allra næsta eldsneytiskerfinu. Búnaðurinn er byggður upp af hólkum með kúlum úr tin- og málmblöndu og segulmögn- uðum járnum. í sameiningu hefur þetta áhrif á uppröðun sameindanna í eldsneytinu og auðveldar bruna. Glæ- nýjar bandarískar rannsóknir sýna að áhrifin felast í því að fljótbrennanleg eða óstöðug efni í eldsneytinu nýtast betur og tregbrennanleg efni einnig. Þannig breytast eiginleikar eldsneytis- ins í raun við að fara í gegnum Clean- burn. Mýmargar rannsóknir hafa veriö gerðar á áhrifum þessa búnaðar og ber allt að sama brunni. hreinna loft Málmkúlurnar og seguljárnið eyðast með tímanum við aö eldsneyti streym- ir gegnum hólkana. Endingartíminn er 10.000-12.000 tímar eða fast að tveggja ára keyrslutíma skuttogara. Tímamótaprófun í 2. tbl. Ægis 1994 var birt skýrsla tæknideildar Fiskifélags íslands um Cleanburn sem staðfesti 5% eldsneyt- issparnað auk minni sótmyndunar og aukinnar orku. Niðurstöður þessar fengust með samanburðarmælingum á stórri hjálparvél í Snorra Sturlusyni RE David Butt. í samvinnu tæknideildarinnar með Granda hf. og Vélskóla íslands. í ljós kom lægri afgashiti og þannig bætt orkunýting og því fylgja ýmis jákvæð áhrif á viðhald og rekstur vélar. „Þessi skýrsla var ákaflega mikilvæg því þetta var í fyrsta sinn sem opinber stofnun rannsakaði þennan búnað. Ég sendi skýrsluna til Bretlands og hún vakti mikla athygli og í framhaldinu jókst salan í Englandi, Noregi og víðar. Þessi skýrsla varð einnig hvati frekari rannsókna," sagði David Butt í samtali við Ægi. David vildi sérstaklega vekja athygli á Cleanburn búnaðinum sem meng- unarvörn. Hann sýndi Ægi tölur frá Lloyds Register sem sýna áætlaða mengun frá íslenska fiskiskipaflotan- um miðað við olíueyðslu. Þar er áætl- uð köfnunarefnismengun 13.000 tonn á ári, óbrennt eldsneyti 850 tonn og koltvísýringsmengun (C02) 812.500 tonn árlega. Fiskiskipaflotinn á íslandi notar árlega 250 þúsund af olíu og notar margfalt meira en t.d. bílafloti landsmanna. „Samkvæmt rannsóknum sem gerð- ar hafa verið, t.d. í Vélskóla íslands, er hægt að minnka köfnunarefnismeng- un um allt að 40% með Cleanburn. Það dregur úr koltvísýringsmengun með bættri orkunotkun." Augljós sparnaður Cleanburn búnaðurinn kostar frá 150 þúsund krónum fyrir meðalstóran skuttogara með 2.500 ha. vél svo sparnaðurinn fyrir útgerðarfyrirtæki er augljós. Búnaðurinn er þegar kominn um borð í 40 skip í íslenska flotanum og meðal viðskiptavina D.E.B. eru fyr- irtæki eins og HB & Co á Akranesi, Grandi hf. og Eimskip en búnaðurinn er í flestum skipum þeirra og er notað- ur hjá véladeild Eimskips. „Það er eins og það þurfi að sann- færa hvern einasta vélstjóra persónu- lega og menn vilji ekki taka mark á óvilhöllum rannsóknum sem sýna óyggjandi hag af tækinu," segir David. Cleanburn búnaðurinn er í eðli sínu einfaldur og hefur verið þekktur síðan í seinni heimsstyrjöldinni þegar hann var notaður í flugvélum. Á tímum orkusukks og lágs olíuverðs naut hann ekki vinsælda en nú, á tímum hærra orkuverðs og sérstaklega í ljósi um- hverfisverndaráhrifa hans, nýtur hann vaxandi vinsælda um allan heim. í áð- urnefndri skýrslu tæknideildar Fiskifé- lagsins segir m.a.: „Olíukostnaður íslenska fiskiskipa- flotans er nálægt 4 milljörðum á ári. Ef til dæmis 5% olíusparnaður næst með notkun bætiefna og búnaðar er um verulegar upphæðir að ræða ... Þá hlýt- ur þaö aö vera keppikefli sérhverrar þjóðar að draga sem mest úr mengun- aráhrifum nú á tímum vaxandi tillits til umhverfissjónarmiða." ö 28 ÆGIR JANÚAR 1995

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.