Ægir - 01.01.1995, Blaðsíða 14
Sigurður Ingvarsson
formaður Alþýbusambands Austurlands:
/
I rauninni tómt mál að
tala um frjálsa samninga
Sigurbur Ingvarsson frá Eskifirbi
hefur veriö forseti Alþýbusambands
Austurlands frá 1988. Samningar
sjómanna og landverkafólks eru
lausir og ljóst aft hart verbur tekist á
í komandi kjaravibræbum. Sjómenn
á Austurlandi felldu samningana í
atkvæbagreibslu. Þar eins og víba
var mjög lítil þátttaka í atkvæba-
greibslunni, eba 8-10%. Er verjandi
ab láta svo fáa taka afstöbu fyrir svo
marga?
„Já, þab er verjandi því meb þessu
eru í raun allir ab taka afstööu," segir
Sigurbur í samtali vib Ægi. „Ef vib
erum á annað borð sáttir við lýðræðið
þá erum við sáttir við þetta. Þab eru
engin ákvæði um lágmarksþátttöku í
atkvæöagreiðslu eins og þessari."
Hvað var það einkum í téðum samn-
ingum sem gerði að verkum að sjómenn
felldu þá?
„Samningurinn snerist mikib til um
tíu nýjar veiðigreinar, s.s. frystingu á
bátum, saltfiskvinnslu, rækjuveiðar
meö tveimur trollum og fleiri greinar
sem varða austfirska sjómenn lítið eins
og er. Yfirmenn iögöust harkalega
gegn þessum samningum og það hafði
sín áhrif."
; Lykilatriði að taka á kvótasvindli
1 Er ekki erfitt fyrir sjómenn að vera
I aftur með lausa samninga í Ijósi þess
| sem á undan er getigið þegar lögbann
var sett á sjómannaverkfall á síðasta
ári?
„Þab er bæbi gott og vont. Þab er
gott vegna þess ab beðið er eftir niður-
stöðum nefndar sem átti ab fjalla um
kvótasvindlið. Menn óttast að hún
muni ekki valda hlutverki sínu og þá
er gott að hafa verkfallsvopnið tilbúið.
Það að taka á þessu kvótasvindli,
sem snýst um þátttöku sjómanna í
kvótakaupum, er lykilatriði í þessum
málum."
Hvernig þarf að ganga frá þessum
málum svo sjómenn telji viðunandi?
„Það hefur um árabil verið krafa sjó-
manna ab allur fiskur fari á markab.
Við teljum að það myndi sjálfkrafa út-
rýma þessu svindli."
Allur fiskur á markað
Á Austfjörðum er starfrœktur Fisk-
markaður Hornafjarðar með útibú á
Fáskrúðsfnði og Neskaupstað en Sig-
urður segir að langstcersta hluta afla
sem landað er á Austfjörðum sé landað
í föstum viðskiptum og fari ekki á
markað. I langflestum tilvikum séu út-
gerðarmenn þannig að semja við sjálfa
sig um fiskverðið en Sigurður bendir á
að í 85% tilvika séu eignaraðilar þeir
sömu.
Nú tíðkast í fóstum viðskiptum að
miða einhvern hluta aflans, 15-20%,
við markaðsverð og Sigurði finnst eðli-
legt að það hlutfall hœkki eða fisk-
markaðir verði efldir.
„í framkvæmd er það því þannig að
sjómenn búa vib mjög mismunandi
kjör og langflestir þeirra mega þola að
vera í föstum viðskiptum. Þetta skiptist
líka eftir landshlutum því á lands-
byggðinni fer minni hluti aflans á
markað en á suövesturhorninu.
Það sem mest brennur á sjómönn-
um er samdrátturinn sem orðiö hefur.
Það er ekkert oröið upp úr því að hafa
að vera á ísfisktogurum sem eru í föst-
um viðskiptum og selja ekkert á mark-
að. Ef ekki væri atvinnuleysi í landi þá
myndi vera erfitt ab manna skipin en
14 ÆGIR JANÚAR 1995