Ægir - 01.01.1995, Qupperneq 21
Meðeigendur framtíðarinnar fundnir
Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Haralds Böðvars-
sonar, er þriðja kynsióð stjórnenda þess fyrirtækis en afi hans
Haraldur Böðvarsson byrjaði að gera út sexæring á Akranesi
1906. Sjálfur segist Haraldur vilja líta svo á að hann sé sjöundi
liður í ætt útgerðarmanna sem koma úr Breiðafjarðareyjum, nán-
ar tiltekið Rauðseyjum. Böðvar iangafi hans var meðal fyrstu
skráðra Akurnesinga en hann hóf útgerð og verslun á Skipa-
skaga i lok síðustu aldar.
Haraldur er fæddur 1949 og hóf störf hjá HB 1970 eftir próf úr
Samvinnuskólanum og framhaldsnám í Englandi. Hann er
kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur alþingismanni og eiga þau fjóra
syni. Haraldur hefur verið framkvæmdastjóri frá 1976 auk þess
að sitja í stjórn SH, Síldarútvegsnefndar, LÍÚ, Coldwater Seafood
og Skeljungs. Eins og kannski má búast við af Skagamanni er
hann fyrrverandi meistaraflokksmaður í fótbolta með ÍA og
landsliðinu.
Það er stundum sagt að þriðja kynslóðin í fjölskyldufyrirtæk-
inu setji á hausinn það sem forfeðurnir byggðu upp!
„Norðmennirnir kalla þetta „desert-kynslóðina". Þetta er tæp-
lega hefðbundið fjölskyldufyrirtæki iengur en það væri varla orðið
svona gamalt nema af því að menn hafa lagt sig alla fram og náð
að fylgjast með þróuninni á hverjum tíma. Einungis þannig helst
fyrirtækinu á góðum skipstjórum og góðu starfsfólki í landi.
Ég er sáttur við hvernig hefur tekist að laga fyrirtækið að kröf-
um tímans til þessa.
Þegar forfeður okkar voru að byrja að gera út þá tíðkaðist
ákveðið sameignarfyrirkomulag. Skipstjórinn og útgerðarmaður-
inn áttu gjarnan bátinn saman. Síðan komu tímar þegar einstakir
útgerðarmenn áttu stærstan hlut eða allan. Nú má segja að í
þessari grein séu menn að leita að meðeigendum framtíðarinnar.
Með opnun fyrirtækisins hefur okkur tekist að stækka hluthafa-
hópinn. Nýju eigendurnir, lífeyrissjóðir, fyrirtæki og einstakling-
ar, eru einnig hluthafar í öðrum fyrirtækjum og hafa því góðan
arðsemissamanburð. Þess vegna er mikilvægt að standast kröf-
ur þeirra sem eru tilbúnir að ávaxta sitt sparifé í fyrirtæki eins og
þessu.“
Eru einhver lykilatriöi til að vel takist við rekstur?
„Þorvaldur í Síld og fisk lýsti því mjög skemmtilega þegar
hann sagði að þrennt væri mikilvægast. Það væri að hafa jákvætt
fólk í kringum sig, að vinna með fólkinu og vera í vinnunni. Ég
geri hans orð að mínum.“
„Það hefur verið prinsíp þessa fyrirtækis að
skulda bænum sem minnst og vera ekki háð
honum fjárhagslega. Þess má geta að við feng-
um um áramótin viðurkenningu frá Akranesbæ
vegna mikilla og farsælla viðskipta í 88 ár.
Svona lítið bæjarfélag eins og Akraneskaupstað-
ur er með svipaðar tekjur og Höfrungur III og
því veitir ekki af öllu sínu í það sem það á að
sinna.
Víða úti um land eru sveitarfélög sem hafa
sett mikið fé í atvinnulífið í miklum vandræð-
um. Mér finnst það alröng stefna að sveitarfé-
lög séu að blanda sér í atvinnurekstur. Það er
göfugt að vilja halda uppi atvinnu en það end-
ar alltaf með því að reksturinn verður að spjara
sig sjálfur.
Þetta fyrirtæki hefur kosið að fara aðrar leið-
ir. Við opnuðum fyrirtækið og settum á al-
mennan hlutafjármarkað og höfum þannig
fengið inn nýja hluthafa.
Það eru gerðar miklar kröfur til fyrirtækja
sem eru rekin með þessu formi um að standa
sig. Það eru um 600 hluthafar í þessu fyrirtæki
en með þátttöku lífeyrissjóðanna má kannski
segja að þeir séu í raun 62 þúsund því lífeyris-
sjóðirnir eru að ávaxta fé umbjóðenda sinna.
Þessu fylgir auðvitað mikil pressa um að reka
fyrirtækið með hagnaði og það er fyrirsjáanlega
hagnaður á árinu 1994."
Sextíu og tvö þúsund sægreifar
Haraldur heldur því fram að það veiti sveitar-
félaginu ákveðið öryggi að þetta rekstrarform
skuli vera á stœrsta sjávarútvegsfyrirtœkinu. Það
sé þannig ekki háð duttlungum einstaklinga
hvort kvóti er seldur úr byggðarlaginu heldur ráði
ákvörðun stjómarinnar.
Með því að vera almenningshlutafélag á Verð-
bréfaþingi blandar HB sér í hóp nokkurra
stœrstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtœkja lands-
ins, svo sem Granda, ÚA, Þormóðs ramma,
Skagstrendings, Síldarvinnslunnar á Neskaup-
stað og nú síðast bœttist Vinnslustöðin í Vest-
mannaeyjum í hópinn.
„Ef þú lítur á þessi stóru fyrirtæki, sem öll
eru almenningshlutafélög og eign fjölmargra,
þá eru þetta jafnframt þau fyrirtæki sem eiga
mikinn kvóta. Það er alltaf verið að tala um þá
stóru í þessari grein og þeir kallaðir sægreifar.
Það eru þá 62 þúsund sægreifar sem eiga HB."
Stœrstu hluthafar í HB er fjölskylda Sturlaugs
H. Böðvarssonar, stœrsti einstaki hluthafi er
Rannveig ekkja hans með 11%. Við sameining-
una 1991 átti fjölskyldan alls um 45% en eftir
ÆGIR JANÚAR 1995 21