Ægir - 01.01.1995, Side 29
NÝ REGLUGERÐ UM ÓSONEYÐANDI EFNI
Umhverfisrábuneytið hefur gefib út nýja
reglugerh, nr. 546/1994, um varnir gegn
mengun af völdum ósoneyðandi efna, og tók
hún gildi 1. nóvember sl. í fyrstu grein hennar
kemur fram ab markmib hennar sé aö tryggja
örugga meðhöndlun og minnka losun efna
sem rýra ósonlagib og vernda þannig ósonlag-
ib í heibhvolfinu.
Ægir spurbi Gunnlaugu Einarsdóttur, efna-
fræðing hjá Hollustuvernd ríkisins, hvort þessi
nýja reglugerð breytti einhverju fyrir þá sem eiga
og reka kælikerfi.
„Hún tekur einnig til vetnisklórflúorkolefna
(HCFC) sem eldri reglugerb geröi ekki. Sam-
kvæmt reglugerðinni er óheimilt að setja upp ný
kælikerfi og varmadælur sem nota HCFC-efni
eftir 1. janúar 1996. R-22 tilheyrir HCFC."
Með setningu þessarar reglugerðar má segja að
íslendingar standi nágrannaþjóöum sínum jafn-
fætis í þessum efnum en verið er að setja sam-
bærilegar reglur á hinum Norðurlöndunum.
Montreal-bókunin, sem reglugerðin er í raun
miðub vib, hefur verið endurskoðuð tvisvar sinn-
um, seinast í Kaupmannahöfn 1992, og endur-
skoðanir hafa jafnan leitt af sér hertari reglur.
Næsti fundur abildarþjóða Montreal-bókunar-
innar verður árið 1995. Þá má búast við að regl-
urnar verði hertar þannig að þessi nýja reglugerð
er aðeins áfangi á leiðinni.
í viðauka 2 við reglugerðina segir: „Heildar-
magn vetnisklórflúorkolefna sem heimilt er að
flytja inn til landsins á tímabilinu 1. janúar 1995
til 31. des. 1995 jafngildir 8,4 ODP-tonnum."
Þessi kvóti íslands af ósoneyðandi efnum er
miðaður við innflutningstölur ársins 1989. Með
ósoneyðingarmætti, ODP, er átt við hlutfallslega
getu efna til ab brjóta niöur óson í heiðhvolfinu
miðað við tríklórflúrormetan (CFC-11). Með
ODP-tonnum er átt við magn í tonnum marg-
faldað með ósoneyðingarmætti.
Sveinn Jónsson vélstjóri hefur reiknað út að
umræddur kvóti íslands muni ekki duga nema
fram í mars 1995 vegna slælegrar umgengni,
mikils leka og aukinnar notkunar á ósoneyðandi
efnum. Er ástandið svona slæmt?
„Ég tel að kvótinn dugi út árið. Ég tel að þab
sé of mikil einföldun að framreikna þetta eins
og hann gerir en það verður að koma í ljós hver
raunveruleikinn verður. En kælimibilslekann
verbur að minnka
Sé litið á árið í ár kemur í ljós aö áætlaður innflutningur R-22 er 137
tonn sem er mikil aukning frá fyrra ári. Innflutningur á R-12 eykst trú-
lega úr 23 tonnum 1993 í 31 á þessu ári. Ég tel óhætt að reikna meb að
að minnsta kosti 10-15 tonn af þessari aukningu séu hamstur.
Á innflutningstölum sést einnig að margir eru að skipta yfir í R-22
frá R-502 sem kælimiðil. Útflutningur hefur ekki verib reiknaður með
en hann er einhver og þá er átt við söiu til skipa skráðra erlendis."
Þennan kvóta hafa íslendingar til ársins 2003, miðað við núgild-
andi reglur, en þá verður hann minnkaður í 5,5-ODP tonn og síðan í
3,4 ODP-tonn árið 2007. í núverandi reglugerð er reiknaö með því að
kvótinn verði 0 árið 2015.
Ekki hafa enn verið settar reglur um innra eftirlit og skráningu í
kæliiðnaðinum en svokallaðar KMO-reglur sem notaðar hafa verið í
Danmörku og gefið góða raun hafa vakib athygli hérlendis. C1
Við bjóðum þjónustu
á eftirtöldum verksviðum:
Viðgerðir á stýrisvélum af öllum gerðum og stærðum, bjóðum nýjar stýrisvélar
og varahluti í eldri gerðir.
Viðgerðir á tjökkum og dælukerfum bíla og skipskrana.
Smíði á dælukerfum fyrir vökvakerfi stýrisvéla og spilkerfa.
Viðgerðir á línu og netaspilum jafnt og togspilum.
Seljum sjálfstýringar frá Scan Steering og ComNav,
stýrisvélar frá Scan Steering, Tenfjord, Emil Bolsvík og Frydenbö.
Seljum TREFJA skipshurðir í fjórum stærðum með gluggum, læsingum,
körmum úr áli eða stáli og snerlum úr rústfríu stáli.
Smíðum eldvamarhurðir eftir pöntunum.
Tökum að okkur hverskonar háþrístilagnir, viðgerðir á ventlum, lokum og
hverskonar rennismíði.
Dælusett
Frá Scan Steering APS. Danmörku.
Stýrisvélar, dælusett, sjálfstýringar og vökvakerti.
önnumst uppsetningar og þjónustu.
GARÐAR SIGURÐSSON
STÝRISVÉLAÞJÓNUSTA
Stapahraun 5 - Pósthólf 301 - 222 Halnarfirði
Simi 54812. heimaslmi 51028 - Fax 653166
Umboösaöili fyrir Tenfjord og
Frydenbö stýrisvélar.
Varahlutir og viðgeröarþjónusta
allan sólarhringinn.
Látið fagmenn vinna verkið.
Stýrisvél
ÆGIR JANÚAR 1995 29