Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 8

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 8
FRÉTTIR Nýir kjarasamningar VMSÍ og Samtaka atvinnulífsins: Áfangasigur í starfs- menntamálum greinarínnar - að mati Aðalsteins Baldurssonar, formanns fiskvinnsludeildar VMSÍ Aðalsteinn Baldursson, formaður fisk- vinnsludeildar VMSI, segir að vissir sigr- ar hafi náðst fram fyrir hönd fiskvinnslu- fólks í þeim kjarasamningum sem undir- ritaðir voru þann 14. þessa mánaðar. Hækkun launa við undirskrift metur Að- alsteinn á bilinu 9 til 11% en hann segir einnig mikilvægt að hafa í huga þau sér- mál fiskvinnslufólks sem náðst hafi sam- komulag um. „Við lögðum upp með að ná fram veru- iegri breytingu á réttindum og kjörum fiskvinnslufólks en eins og alltaf í samn- ingum þá nást ekki allir hlutir fram. Einn þáttur viðræðnanna sneri að hinum fræga kauptryggingarsamningi og nú mun fiskvinnsiufólk t.d. eiga rétt á kauptrygg- ingarsamningi eftir tvo mánuði í stað fjögurra áður. Við sömdum einnig um þætti sem snúa að starfsmenntun fisk- vinnslufólks, m.a. um stofnun starfs- menntunarsjóðs með 140 milljóna króna framlagi á samningstímanum. Báðir aðil- ar munu tilnefna fulltrúa í nefnd sem skipuleggja mun grunnmenntun fyrir fiskvinnslufóik sem starfandi er í húsun- um og ég bind miklar vonir við að okkur takist að búa til menntanet fyrir þetta fólk sem byggist upp á stuttum nám- skeiðum á borð við þau sem Starfs- fræðslunefnd fiskvinnslunnar býður upp á og ný námskeið sem þessi starfsmennt- unarsjóður kostar. Þarna erum við að taka okkur til fyrirmyndar fólk í t.d. heil- Nýjir bátarafgeymar TUDOR hefur hannað nýja línu bátarafgeyma sem hafa ýmsa kosti yfir eldri gerðir BÍLDSHOFÐA 12 • 112 REYKJAVÍK SlMI 577 1515 »FAX 577 1517_____ Lokaðar sellur - mega halla 90° Eitt útöndunarop - má tengja slöngi Fljótari að hlaðast upp en aðrar gerðir Meiri startkraftur en fyrr Margfalt hristingsþol miðað við aðra Ein gerð bæði fyrir start og neyslu Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ. brigðisgeiranum en við viljum undir- strika að starfsmenntunarþörfin er ekkert síðri í fiskvinnslunni, jafn mikilvæg at- vinnugrein og hún er. Það er krafist mik- ils af fiskvinnslufólki og með aukinni starfsmenntun og -þjálfun þá vonast ég til að sjá laun fiskvinnslufólks á uppleið á komandi árum.“ Eins og aðrir samningsaðiiar mun fisk- vinnslufólk fá viðbótardag í orlofi og sömuleiðis er hækkun á slysatryggingu. Breyting á almennri launatöflu munu líka hafa áhrif fyrir fiskvinnslufólkið því röðun í flokka í töflunni verður ekki eins þröng og afmörkuð og áður var. „Þetta atriði tel ég að geti líka orðið til þess að hækka launin almennt í greininni," segir Aðalsteinn. Loks er að geta þess ákvæðis í samn- ingnum að fólk sem kemur með mennt- un úr Fiskvinnsluskólanum og fer að vinna í vinnslunni fær í öllum tilfellum nám sitt metið í launum, hvaða starfi sem það svo gegnir á viðkomandi vinnustað. „Samningurinn fer nú til afgreiðslu hjá félögum í aðildarfélögum VMSÍ og í valdi hvers og eins að ákveða framhaldið. Niðurstöðuna fáum við svo þann 29. apr- íl," segir Aðalsteinn Baldursson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.