Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 38

Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN Magur fiskur geymdur til betri tíma - afréttarfé í svelti að vori Þorskur étur loðnu. Stærð loðnu- stofnsins sveiflast verulega. Til er það sjónarmið, þegar þorskur er magur og lítið um loðnu, að veiða ekki þorskinn þótt viðurkennt sé að þorskstofninn sé of stór miðað við næringarskilyrði. Það á að verða til þess, þegar loðnustofninn stækkar, að nóg verði til af þorski til að nýta loðnuna sem best. Solt- inn þorskur bíður reyndar ekki eftir því að loðnan stækki, heldur seður hungur sitt strax á henni og því stækkar loðnustofninn ekki en sjálfur nær þorskurinn ekki þeim vexti, sem hann nær við næga og stöðuga næringu. I þessu eru álitaefni og kunna að vera ólíkir hagsmunir. Hliðstætt því að ætla sér að geyma magran fisk í sjó til betri tíma er að senda fé á afrétt að vori, þótt gróður vanti, af því að menn vænti þess, að á miðju sumri verði nægur gróður. Hungraður þorsk- ur étur loðnuna upp áður en stofninn styrkist og soltið sauðfé nagar landið niður í svörð og gróðurfar spillist og gróðrinum nýtist ekki af sumarhlýindunum, en lömbin vantar stöðuga og næga næringu og hljóta því ekki eðlilegan vöxt. Um þetta eru ekki álitaefni. Takmörkun heildarfallþunga - takmörkun heildarafla Enda þótt tíð sé góð fram eftir hausti og gróður nægur og gripir dafni því á afrétti, kemur ekki til greina hér á landi að framlengja beitartíma á haustin; tíðarfari er ekki að treysta og haustverkum þarf að sinna, áður en vetur geng- ur f garð. Fráleitt þætti hins veg- ar að miða beitartíma við að náð sé fyrirfram ákveðnu samanlögðu kjötmagni og fé sótt fyrr á fjall, þegar vel árar, og stöðva þannig nýtingu landsins, þegar best læt- ur. Stjórn þorskveiða hér á landi hefur hins vegar verið þannig, að heildarafli hefur verið takmarkað- ur fyrirfram og ósveigjanlega með tilliti til betri gangna þorsks en gert var ráð fyrir við ákvörðun um leyfilegan heildarafla, en ekki hirt um ráð til að halda niðri fjölda í hverjum árgangi með tilliti til þrifa veiðistofnsins. Það er sam- bærilegt við að ákveða leyfilegt heildarkjötmagn af afrétti og skipa mönnum að reka fé af fjalli, þegar áætlað er, að það hafi náðst, en gera engar ráðstafanir til að tryggja þrif þess, sem á afrétti gengur, með því að takmarka fjár- fjöldann sem rekinn er á fjall. Takmörkun upprekstrar - takmörkun sjósóknar Álag á afrétti er gjarna metið í tölu fullorðins fjár. Bændur hafa undanfarið hver fyrir sig fækkað svo fé og hætt að reka, að ekki hefur þótt ástæða fyrir stjórnir upprekstrarfélaga að ákveða heild- arfækkun, en ætla má, ef slíkri fækkun ætti að jafna á fjáreigend- ur, að viðmiðunin yrði fjöldi full- orðins fjár. Líta má á hverja lambá sem sóknareiningu á afrétti, en slíka algilda sóknareiningu vantar um sjósókn, eins fjölbreytileg og hún er nú. Fjölbreytileg álitaefni og ólíkir hagsmunir Þau álitaefni, sem sum tengjast hagsmunum, sem hér hafa verið rakin, eru þannig vaxin, að þeim verður auðveldlega ráðið til lykta í tiltölulega samstæðu félagi, eins og sauðfjársveit er, enda eru hin lífrænu álitaefni auðsærri þar en í sjónum og um minni hagsmuni að tefla en við sjósókn. Vandinn er sá við stjórn á nýtingu sjávarins, ef ekki á að einblína á leyfilegan heildarafla, ákvörðun hans fyrir- fram og skiptingu, heldur beina athyglinni að hinum margþættu ágreiningsefnum, að ágreinings- efnin verða varla útkljáð með þekktum aðferðum hagfræðinga og stjórnmála. Það sýnist hins vegar mega gera með sjóðvali, sem ég hef m.a. kynnt í Sveitar- stjórnarmálum árið 1996. RAFGEYMASALAN Dalshraun 17 Sími og fax 565 4060 LHUÐa rafgeymaþjónusta Zink húðaða, Járn-sökkur fyrir handfærabáta

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.