Ægir - 01.04.2000, Síða 12
I FRÉTTIR
Vatneyrardómurinn hefur s!n áhrif:
„Aukin viðskipti með
kvóta og báta"
- og verð fer hækkandi á nýjan leik
Eggert Jóhannesson hjá Skipamiðluninni
bátum og kvóta ehf., segir að Vatneyrar-
dómurinn hafi haft merkjanleg áhrif á
kvóta- og bátaviðskipti. Um árabil hafi
óvissuástandið í kvótamálunum sett
mark sitt á viðskiptin en eftir Vatneyrar-
dóminn sé ljóst að t.d. bankastofnanir
muni setja sér skýrari lánareglur og koma
með markvissari hætti að fyrirgreiðslu í
greininni. Sér í lagi sé þetta mikilvægt
fyrir smábátaeigendur.
„Verð á kvóta hafði farið lækkandi mán-
uðina áður en Vatneyrardómurinn var
kveðinn upp en mér sýnist augljóst að
verðið muni fara nú fara á sömu slóðir á
nýjan leik,“ segir Eggert.
Hvað smábátaútgerðirnar varðar þá er
ljóst að fyrirgreiðsla frá Byggðastofnun er
vaxandi og segist Eggert vita til þess að
bankastofnanir vinni að því að endur-
skipuleggja sínar lánareglur, enda líti
þær svo á að dómurinn hafi staðfest
kvótakerfið í sessi. Óvissuástandinu sé
með öðrum orðum lokið með þessari nið-
urstöðu í Hæstarétti.
„Mér sýnist að viðskiptin séu jafn lífleg
á öllum sviðum útgerðarinnar hvað snert-
ir skip og báta. Á þessum árstíma koma
að vísu margir smábátakarlar í handfæra-
kerfinu til að bæta við sig kvóta fyrir
sumarið en almennt hef ég trú á að kaup-
endur verði fleiri en seljendurnir og það
er jafnan ávísun á hærra verð. Eg held að
það sé mikið frá þegar Vatneyrardómur-
inn er frá og fyrir smábátaflotann hef ég
trú á að hann skili betra umhverfi hvað
varðar fyrirgreiðslu í lánastofnunum.
Áhrifin af því munu líka verða mikilvæg
fyrir veikustu byggðirnar, þar sem smá-
bátarnir eru mikilvægur hlekkur í at-
vinnulífinu,“ segir Eggert Jóhannesson.
Eggert Jóhannesson hjá Skipamiðluninni bátum og kvóta. „Ég held að það sé mikið frá
þegar Vatneyrardómurinn er frá."
Þorsteinn vill tæknina
í eftirlitið
Á aðalfundi Samherja fyrir
skömmu viðraói Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja hf., þá hugmynd að
nýta sjónvarpstæknina til eft-
irlits um borð í vinnsluskipum
úti á sjó i staó þess að þar
verði eftirlitsmenn frá Fiski-
stofu. Taldi Þorsteinn þetta
mögulegt með því móti aó
senda myndir beint til Fiski-
stofu með aðstoð fjarskipta-
tækninnar eða að Fiskistofa
fái afhentar spólur með upp-
tökum um leið og skip koma í land.
Kostnaóur við eftirlit hefur verió út-
gerðunum þyrnir i augum en Þorsteinn
Fjarskiptatæknin kann að vera brúkleg til að leysa af hólmi
eftirlitsmenn um borð í skipum úti á sjó.
taldi á aðalfundinum að með aðstoð
myndavéla yrði hann mun minni en með
núverandi fyrirkomulagi.