Ægir - 01.04.2000, Blaðsíða 41
FISKAR
Litli flóki.
Litli flóki Phrynorhombus norvegicus
Litli flóki veiddist í rækjuvörpu Drafnar RE á 62-90
metra dýpi í Húnaflóa (65°34,6'N, 21°08,7'V) í
september. Hann var 9 cm langur.
Þetta er minnsta flatfisktegundin á Islandsmiðum
- verður varla stærri en 12 cm fullvaxin - og ein
þriggja sem snýr vinstri hlið upp.
Ennisfiskur Platyberyx opalescens
I marslok veiddist einn 28 cm langur í dragnót Rúnu
RE norðan Eldeyjar.
Annar, 23 cm langur, veiddist í flotvörpu Snorra
Sturlusonar RE á 659 metra dýpi á Reykjaneshrygg
(6l°32'N, 27°30'V) í'apríllok.
Blákarpi Polyprion amerícanus
Um 40 cm langur blákarpi veiddist á línu á 73 metra
dýpi undan Lóndröngum á Snæfellsnesi í byrjun nóv-
ember.
Glyrna Howella sherborni
I apríl veiddist 11 cm glyrna í flotvörpu Snorra
Sturlusonar RE á 659 metra dýpi á Reykjaneshrygg
(6l°30'N, 27°30'V).
Ægisangi Searsia koefoedi
Fjórir ægisangar komu í flotvörpu Snorra Sturluson-
ar á 659 metra dýpi á Reykjaneshrygg (6l°30'N,
27°30'V) f apríl. Þeir voru 14-28 cm langir.
I nóvember kom einn 13,5 cm langur í flotvörpu
Snorra Sturlusonar RE á 750 metra dýpi á Reykjanes-
hrygg (62°28'N, 25°21'V).
Ógreind angategund
Fiskur af angategund, sem ekki hefur verið greindur,
veiddist í botnvörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar GK á
grálúðuslóð vestan Víkuráls í maí. Fiskurinn var 24
cm langur.
Broddatanni Borostomias antarcticus
í mars veiddist einn 16,6 cm langur broddatanni í
botnvörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar GK á grá-
lúðuslóð vestan Víkuráls.
Brynstirtla Trachurus trachurus
Ein veiddist í maí á 73 metra dýpi við Grímsey og
önnur veiddist einnig við Grímsey á 22-24 metra
dýpi í október. Hún var 40 cm löng og var veiðiskip-
ið Þorleifur EA.
Gleypir Chiasmodon niger
Einn 12,5 cm langur veiddist í botnvörpu Hrafns
Sveinbjarnarsonar GK á grálúðuslóð vestan Víkuráls
í mars.
Stóri földungur Alepisaurus ferox
Einn 132 cm langur földungur veiddist í flotvörpu
Snorra Sturlusonar RE á 659 metra dýpi á Reykjanes-
hrygg (6l°32'N, 27°30'V) seint í apríl.
Rauðskinni Barbourísia rufa
í maílok veiddist 32 cm rauðskinni á Reykjanes-
hrygg. Veiðiskip var Klakkur SH. Þetta var sá þriðji
á Islandsmiðum. Fyrsti fiskurinn af þessari tegund,
37 cm langur, veiddist f maí 1995 djúpt suðvestur af
Reykjanesi, annar, 26 cm langur, veiddist í maí 1996
vestan Víkuráls. Auk þess veiddist einn 25 cm lang-
ur í maí 1997 rétt utan 200 sjómílna markanna und-
an Suðvesturlandi.
Fagurserkur Beryx splendens
Einn 33 cm langur kom í botnvörpu Sléttaness IS í
Skerjadjúpi í maí.
Klumbuskeggur.
Klumbuskeggur Chirostomias pliopterus
I byrjun júni veiddist 17 cm klumbuskeggur í botn-
vörpu Þinganess SF á 256 metra dýpi í Hvalbakshalla
(64°18'N, 12°33'V).
Þetta mun vera annar klumbuskeggurinn sem
veiðist á Islandsmiðum. Sá fyrsti veiddist á 505-570
metra dýpi suðvestur af Reykjanesi í september árið
1971.
Drumbur Thalassobathia pelagica
Um miðjan apríl veiddust þn'r á 622-659 metra dýpi
á Reykjaneshrygg (6l°00'N, 28°00'V) í flotvörpu
Snorra Sturlusonar RE. Lengd þeirra var 27, 31 og
34,5 cm.
Svartgóma Helicolenus dactylopterus
Ein svartgóma veiddist í botnvörpu Sléttaness IS í
Skerjadjúpi í maí. Hún var 20,5 cm.