Ægir - 01.04.2000, Page 42
FISKAR
Túnfiskur Thunnus thynnus
Auk allra þeirra túnfiska sem japanskir túnfiskbátar
veiddu innan íslensku lögsögunnar djúpt suður af
landinu síðsumars og haustið 1999 þá veiddust þrír á
meira hefðbundnum miðum og nær landi. Þeir
veiddust í ágúst. Einn veiddist í flotvörpu undan
Suðausturlandi (63°40TSI, 13°45'V til 63°50'N,
14°14'V) og var 275 cm langur. Veiðiskip var Hákon
ÞH. Hina tvo veiddi Byr VE á túnfisklínu í Háfa-
djúpi og voru þeir 140 og 186 kg á þyngd skv. Fiski-
fréttum.
Af íhaldssemi höldum við okkur við þetta gamla
nafn, túnfiskur, þrátt fyrir það að annað nýtískulegra,
lengra og óþjálla, „bláuggatúnfiskur" þyki fínna.
Urrari Eutrígla gurnardus
í marslok veiddust fimm urrarar í botnvörpu Snorra
Sturlusonar RE á 183 metra dýpi suðvestur af Eldey
(63°30'N, 24°05'V). Þeir voru 32, 36, 36, 37 og 37
cm á lengd.
I byrjun júlí veiddist einn 32 cm langur á 40 metra
dýpi út af Ólafsvík (64°57'N, 23°47'V). Veiðiskip
var Hugborg SH.
Ógreindur sogfiskur
Um 23,5 cm langur ógreindur sogfiskur kom í
rækjuvörpu rannsóknaskipsins Drafnar RE í ágúst
norðvestan Kolbeinseyjar (ó^MOTNÍ, 19°4l'V).
SvartdjöfuLL.
Svartdjöfull Melanocetus johnsoni
I mars veiddist einn 13 cm langur svartdjöfull í botn-
vörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar GK á grálúðuslóð
vestan Víkuráls.
Þetta mun vera annar svartdjöfullinn sem veiðist á
Islandsmiðum. Sá fyrsti veiddist í maí 1996 í flot-
vörpu við 200 sjómílna mörkin djúpt suðvestur af
landinu.
Tuðra.
Tuðra Himantolophus albinares
í lok júní kom 20,5 cm löng tuðra í botnvörpu Snorra
Sturlusonar RE á 732 metra dýpi vestan við Reykja-
neshrygg (Ó^^SNÍ, 26°38'V)
Þetta mun vera fjórða tuðran við Island sx'ðan 1994
en þá veiddist sú fyrsta.
Lúsífer Himantolophus groenlandicus
Eins og undanfarin ár veiddust nokkrir lúsíferar
árið 1999 en nú eru sex slíkir á skrá hjá Hafrannsókn-
arstofnuninni.
Einn lenti í flotvörpu Snorra Sturlusonar á 659
metra dýpi á Reykjaneshrygg (6l°30'N, 27°30'V) í
lok apríl. Hann var 30 cm langur. Annar sem var 40
cm langur veiddist í humarvörpu Sigurgeirs Sigurðs-
sonar IS í námunda við Vestmannaeyjar. I maí kom í
botnvörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar GK einn 22 cm
langur sem veiddist suður af Skaftárdjúpi (63°03'N,
17°50'V). I júlílok veiddist í botnvörpu Snorra
Sturlusonar RE einn 22 cm lúsífer á 878 metra dýpi
á grálúðuslóð vestan Víkuráls (64°4l TM, 27°53'V) og
í nóvember fékk sami togari 17,5 cm lúsífer á 750
metra dýpi vestan við Reykjaneshrygg (ó^^^STSI,
28°25'V). Loks má geta 40 cm lúsífers sem fannst í
frystigeymslu en allar upplýsingar um veiðistað, tíma
og slíkt,vantar.
Litli lúsífer Himantolophus mauli
I júnílok veiddist einn 27,5 cm langur litli lúsífer í
flotvörpu Snorra Sturlusonar RE á 732 metra dýpi
vestan við Reykjaneshrygg (62°55'N, 26°38'V).
Þeim fjölgar hægt litlu lúsíferunum á Islandsmið-
um. Þessi mun vera sá 11. eða 12. sem veiðist.
Drekahyrna Chaenophryne draco
Um miðjan apríl kom í flotvörpu Snorra Sturlusonar
14,5 cm drekahyrna á 659 metra dýpi á Reykjanes-
hrygg (6l°00'N, 28°00'V).
Slétthyrna Chaenophryne longiceps
Ein 11,5 cm kom í flotvörpu Snorra Sturlusonar RE
á 659 metra dýpi á Reykjaneshrygg í apríl.
Öfrenja Cautophryne jordani
I byrjun maí veiddist ein 13 cm ófrenja í botnvörpu
Hrafns Sveinbjarnarsonar GK á 549-787 metra dýpi
suður af Surtsey.(63o01'N!,20°42'V).
Aður höfðu fjórar veiðstf innan 200 sjómílna
markanna;'su fyrsta f júní áfíð..l99ö oeein rétt utiyi '
Svarthyrna, Oneirodes eschrichta
Um miðjan júní kom í flotvörpu Snorra Sturlusonar
RE á 714 metra dýpi í Grænlandshafi rétt við 200
sjómílna mörkin (62°26'N,..30226'V) 14,5 cm svart-
hyrna.