Ægir - 01.04.2000, Page 13
FRÉTTIR
Ráðstefna um samkeppnishæfni í sjávarútvegi:
Fiskeldið vaxandi samkeppnis-
aðili á fiskmörkuðunum
Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri
efndi á dögunum til alþjóðlegrar ráð-
stefnu um samkeppnishæfni í sjávarút-
vegi og mættu m.a. nokkir þekktir er-
lendir fræðimenn til ráðstefnunnar og
fluttu þar erindi. Fjallað var á ráðstefn-
unni um sjávarútvegsmálin út frá vist-
fræði, vinnslu- og veiðarfæratækni og
hagfræði.
Meðal fyrirlesara var Daniel Pauly, sem
er þekktur bandarískur prófessor í fiski-
fræði. I hans máli komu fram varnaðarorð
gagnvart þeirri þróun sem hann sagðist
skynja í Norðurhöfum, þ.e. að fiskveiðar
færðust sífellt neðar í fæðukeðjunni. Stað-
reyndin væri sú að á þessum hafsvæðum
hafi menn upplifað reglubundið hrun
stofna á undangengnum áratugum og ef
haldið yrði áfram að leita neðar í fæðu-
keðjuna í fiskveiðum væri hætta á heild-
arhruni á stórum svæðum, ekki aðeins í
einstökum stofnum.
Fiskeldið viðurkennd stærð
I erindum á ráðstefnunni var komið inn á
fiskeldi og þróun þess í heiminum. Ólaf-
ur Halldórsson, framkvæmdastjóri Fisk-
eldis Eyjafjarðar, benti m.a. á að að aukn-
ing í fiskeldi í heiminum hafi numið
10% á ári á undanförnum tíu árum en á
sama tíma hafi samdráttur í veiðum í
Norður-Atlantsahafi á helstu fiskiteg-
undum numið 8% árleg.
Hagfræðiprófessorinn James L. Ander-
son tók í sama streng hvað varðaði aukn-
ingu fiskeldis í heiminum og bendi á að
eldisfiskur sé nú orðinn mikilvægur
hlekkur á fiskmörkuðum heimsins. Þró-
unina í fiskeldi taldi hann eindregið
benda til aukinnar hagkvæmni sem aftur
kæmi til með að skila auknum áhrifum í
viðskipti með fiskafurðir í heiminum.
Heppm' eða snilli?
íslendingarnir Ragnar Arnason, prófessor
í hagfræði við Háskóla Islands, og Rögn-
valdur Hannesson, prófessor við Við-
skiptaháskólann í Bergen, ræddu í erind-
um sínum um hinar hagfræðilegu hliðar
fiskveiða. Ragnar taldi framleiðni í ís-
lenskum sjávarútvegi hafa aukist mikið á
árabilinu 1975-1995 og sé þar um að
ræða meiri framleiðniaukning en í öðrum
atvinnugreinum hér á landi. Meiri breyt-
ingar í þessa veru á síðari hluta tímabils-
ins taldi Ragnar benda til þess að kvóta-
kerfið hafi átt sinn þátt í þróuninni.
Rögnvaldur Hannesson taldi að sú
staðreynd að framleiðni í sjávarútvegi sé
meiri hér á landi en í nágrannalöndunum
væri skyldari heppni en snilligáfum Is-
lendinga! Kvótakerfið hafi þó gert að
verkum að um óþarflega mikinn mann-
afla sé ekki að ræða í greininni en vissu-
lega hafi tekið langan tíma að fá stöðug-
leika í kringum kvótakerfið og líta verði
enn á tilvist þess sem ótrygga.
Ragnar Árnason,
prófessor, ræðir
hér með áherslum
um framleiðni í
islenskum
sjávarútvegi.
VÉLSKÓLI ÍSLANDS
Vélgæslumannanámskeið
Vélgæslumannanámskeið, sérsniðið fyrir trillukarla og eigcndur
skemmtibáta. Heildarlengd námskeiðs með prófi er 60 kennslu-
stundir.
Námskeiðið er í samræmi við lög um atvinnuréttindi vélfræðinga,
vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og veitir 220 kW rét-
tindi.
Fáið upplýsingar og látið skrá ykkur á biðlista í Vélskóla Islands,
Sjómannaskólanum v/Háteigsveg, 105 Reykjavík. Sími 551 9755.
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
Veffang: http://www.velskoli.is Netfang: vsi@ismennt.is
Skólameistari
13