Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.2000, Side 29

Ægir - 01.04.2000, Side 29
FISHING 2000 Innlit á sjávarútvegssýninguna Fishing 2000 í Glasgow Sautján íslensk fyrirtæki tóku þátt á sjávarútvegssýningunni í Glasgow í s.l. mánuði. Þetta eru nokkru fleiri fyrirtæki en í fyrra þegar 13 tóku þátt. Samhliða sjávarútvegssýningunni var sýning í hliðarsal fyrir fiskeldi. A meðal íslenskra fyrirtækja þar voru Stofnfiskur, Vaki-DNG og Pólstækni. Að sögn Her- manns Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Vaka-DNG, er þetta 14 árið sem Vaki sýnir í Glasgow. Útflutningsráð var að þessu sinni þátttakandi með nokkur fyr- irtæki á sameiginlegum bás. A bás ráðs- ins voru fyrirtækin; Markús - björgunar- net, Ráðgarður - skiparáðgjöf, Vélaverk- stæði Sigurðar og NAS (North Atlantic Solutions). Markaðsstjóri Skipatækni hf., Helgi Kristjánsson, var á básnum hjá norska samstarfsaðilanum Vik & Sand- vik. Islensku fyrirtækin voru ýmist með eigin sýningarbása eða í samstarfi við er- lenda umboðsmenn. Þannig voru Póls- tækni og Vaki-DNG með tvo bása á sýn- ingunni, þ.e. í sjávarútvegssalnum og í fiskeldissalnum. Islenskir gestir fjölmenntu að vanda á þessa sýningu. Það er mat manna að sýn- ingin, þó lítil sé, er hún hnitmiðuð við þarfir sjávarútvegsins. Almennt voru menn nokkuð sammála um að ekki fari mikið fyrir nýjungum á sýningunni en tækin séu betri og fjölhæfari en áður og veiðarfærin eru gerð úr sterkari og léttari efnum en áður. Af nýjungum er helst að nefna nýja tækni sem Hampiðjan hefur tekið upp við gerð svokallaðra þantrolla. Tæknin felst í því að trollið er sett upp þannig að þankraftur myndast sem þenur trollið út um leið og það er komið í sjóinn. Texti og myndir: Guðbergur Rúnarsson Starfsmenn í bás Skagans og Frosts, þar sem kynntur var búnaður fyrirtækjanna. Sýningargestur í þungum þönkum með starfs- manni Vaka-DNG. íslensku fyrirtækin á Fishing 2000 J.Hinriksson Stofnfiskur Flampiðjan Pótstækni Carnitek Iseberg Marel UK Landsmiðjan Markús Frost Skaginn Vaki - DNG ÚtfLutningsráð Sæptast North Atiantic Solutions Vélaverkstæði Sigurðar Ráðgarður-skiparáðgjöf Starfsmennirnir í sýningarbás Flampiðjunnar voru ánægðir með viðtökurnar.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.