Ægir - 01.06.2000, Qupperneq 20
FRÉTTIR
Síldarvinnslan hf. i Neskaupstað:
Þróaðasta bolfisklína
landsins í notkun í ágúst
Úr fiskiðjuveri Síldarvinnstunnar, þangað sem botfiskvinnsia fyrirtækisins verður flutt
í næsta mánuði.
I byrjun ágúst mun Síldarvinnslan hf. í
Neskaupstað hefja landvinnslu sína í nýju
fiskiðjuveri fyrircækisins. I húsinu hefur
farið fram síldar-, kolmunna- og loðnu-
frysting undanfarin ár en nú verður bol-
fiskvinnslan einnig flutt í húsið. Þar með
verður aflagt frystihús fyrirtækisins við
Strandgötu í Neskaupstað en þar hefur
starfsemin verið um ártuga skeið.
Samkvæmt upplýsingum í fréttabréfi
Síldarvinnslunnar er nú unnið að því að
koma fyrir í nýja húsinu einni þróuðustu
fiskvinnslulínu landsins en að því verki
koma Skaginn hf. og Marel hf. Að sögn
Ásbjörns Helga Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra landvinnslu hjá SVN, mun
nýja línan, ásamt með nýjum lausfrysti
og öðrum búnaði í fiskiðjuverinu skapa
fyrirtækinu tækifæri til betri nýtingar,
aukinna möguleika í fjölbreyttari afurð-
um og aukinna afkasta. Þannig verði að
líta til þess að flutningarnir verði fyrir-
tækinu mikill styrkur þegar til framtíðar
sé litið.
Flutningarnir eru ekki eina fram-
kvæmdaverkefni SVN nú um stundir.
Skóflustunga hefur verið tekin að nýrri
kæli- og frystigeymslu og verður fyrsti
áfangi þess húss tekinn í notkun í októ-
berbyrjun í haust. Húsið verður um 4000
fermetrar að stærð og mun rúma 4500
tonn af frystum afurðum, 40 þúsund
tunnur af síld. Þetta verður stærsta bygg-
ing sinnar tegundar á landinu.
Kúfiskveiðiskip væntanlegt til Þórshafnar í júli:
Næg skel og góður markaður
- segir Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
Hraðfrystistöð Þórshafnar hafa verið gef-
in fyrirheit um að fá afhent í lok júlí
kúfiskveiðiskip það sem skipasmíðastöð-
in í Huang Pu í Kfna er nú á smíða fyrir
fyrirtækið. Smíði skipsins hefur dregist
verulega, upphaflega stóð til að afhenda
skipið í febrúar á þessu ári, en stóraukin
verkefni hjá stöðinni ytra hafa tafið smíð-
ina.
Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, kveðst
bjartsýnn á að þau fyrirheit sem nú eru
gefin með afhendingu skipsins standist,
en þegar skipið er afhent tekur svo við
tveggja mánaða sigling heim til Islands.
Smíði skipsins kostar um 150 milljónir
króna, en samningur við stöðina ytra var
upp á tvær milljónir dollara.
Kúfiskveiði frá Þórshöfn hefur nokkuð
verið reynd, en hefur reyndar legið niðri
að undanförnu. „Næg er skelin og mark-
aðurinn er til staðar," segir Jóhann A.
Jónsson. Veiðislóðin sem sækja á frá
Þórshöfn er allt frá Skaga og suður að
Stokksnesi, en talið er að á henni séu allt
að 200 þúsund tonn af skel. Af henni eru
talin veiðanleg á ári hverju 3 til 5%, þan-
nig að ljóst er að ef vel telst til getur eft-
irtekjan verið slík að eftir umtalsverðu sé
að slægjast.
Siglingastofnun:
Viðurkenningar
til sjö skipa
Siglingastofnun veitti á sjómannadag-
inn áhöfnum og eigendum sjö íslenskra
fiskiskipa viðurkenningar fyrir góða
framkvæmd á öryggisregium og um-
hiróu á undanförnum árum. Skipin sem
fengu vióurkenningu eru:
Antares VE-18, Björgvin EA-311,
Gissur Hviti ÍS-114, Kristrún RE-177,
Skinney SF-30, Þorsteinn GK-16 og Örv-
ar SH-777.