Ægir - 01.06.2000, Page 41
SKIPASTÓLLINN
Rannsóknaskipið
Árni Friíðriksson RE-200
Guðbergur
Rúnarsson,
verkfræðingur
hjá Fiskifélagi
íslands, skrífar
Hið stórglæsilega rannsóknaskip, Árni Friðriksson RE-200, kom til
heimahafnar í Reykjavík 18. maí, 2000 í fyrsta sinn. Lúðrasveitin
Svanur, sjávarútvegsráðherra, fulltrúar í sjávarútvegi og fjöldi manns
tók á móti skipinu er það lagðist við Miðbakkann í Reykjarvíkur-
höfn. Smíði skipsins lauk um miðjan apríl hjá skipasmíðastöðinni
ASMAR í Chile og hélt það af stað til íslands 20. apríl s.l. Leið skips-
ins heim lá í gegnum Panamaskurðinn og tók siglingin 28 daga.
Smíði skipsins hófst í byrjun árs 1998 og því var
hleypt af stokkunum með viðhöfn í apríl 1999. Við
það tækifæri gaf Ingibjörg Rafnar eiginkona þáver-
andi sjávarútvegsráðherra, Þorsteins Pálssonar,
skipinu nafnið Arni Friðriksson RE-200. Árni sem
skipið heitir eftir var fyrsti forstöðumaður Fiski-
deildar Atvinnudeildar Háskólans sem síðar varð
Hafrannsóknastofnunin.
Skipið er hannað af Skipasýn undir stjórn Sævars
Birgissonar skipatæknifræðings og flokkað sam-
kvæmt reglum Lloyds. Skipið er um 70 metra
langt, 14 metra breitt, með fimm þilför og sérlega
vel útbúið til fiskirannsókna.
Eigandi Árna Friðrikssonar er Ríkisfjárhirsla, en
útgerð er Hafrannsóknastofnun sem Jóhann Sigur-
jónsson stýrir. Skipstjóri er Guðmundur Bjarna-
son, yfirstýrimaður Árni Sverrisson og yfirvélstjóri
er Bjarni Sveinbjörnsson.
Hafrannsóknastofnun gerir fyrir út þrjú rann-
sóknaskip; Bjarna Sæmundsson RE-30 sem var
smíðaður árið 1970, Árna Friðriksson RE-100,
smíðaður árið 1967 og Dröfn RE-35 sem smíðuð
var á Seyðisfirði áriðl981.
Smíðin
Ríkisstjórnin ákvað um mitt árið 1997 að hefja