Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 16

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 16
„Smugudeilan var afar til- finningaþrungið mál, bæði fyrir okkur og ekki síður Norðmenn. Þarna tókust á hagsmunir mikilla fiskveiði- þjóða," segir Jóhann Sigurjónsson sem stýrði samninganefnd íslands í viðræðum við Norðmenn. „Við höfum lent í því að stofnar hafa verið ofveiddir og við þekkjum dæmi um það frá nágrannalöndum okkar að auðnin ein er eftir þar sem áður voru gjöful fiskimið. Þá þróun vill enginn sjá hér á landi." Hagsmunir í húfi Jóhann segir eðlilegt að hér sé mikið rætt og fjallað um Hafrannsóknastofnunina, „því við erum að fjalla um mikil hagsmunamál, bæði hagsmuni einstak- linga, byggðarlaga og reyndar þjóðarinnar allrar. Rannsóknir og niðurstöður Hafrann- sóknastofnunar hafa gríðarleg áhrif á efna- hagslíf þjóðarinnar og því mikilvægt að vel sé að málum staðið." Þegar stofnstærðar- mat Hafrannsókna- stofnunarinnar lá fyrir nú á dögunum féll gengi sjávarútvegsfyr- irtækja verulega, sem dæmi má nefna að gengi hluta- bréfa í Granda féll um 13% á einum degi. Jóhann segir að það sé í raun og veru ekkert nýtt að niður- stöður Hafrannsóknastofnunar hafi áhrif á gengi sjáv- arútvegsfyrirtækja, „og þetta virkar í báðar áttir, allt eftir ástandinu í hafinu hverju sinni. Til þessa hafa slíkar breytingar yfirleitt greinst á ársgrundvelli en með tilkomu hlutabréfamarkaðarins hefur orðið breyting þar á. Þetta er í raun og veru enn ein ástæða þess að við verðum í öllum okkar störfum að reyna af fremsta megni að standa okkur og gera sífellt betur!“ Samningamaðurínn Áður en Jóhann tók við stöðu forstjóra Hafrann- sóknastofnunarinnar starfaði hann í samninganefnd- um á vegum utanríkisráðuneytisins. Jóhann segir það hafa verið krefjandi en um leið afar ánægjulegt starf. „Þarna var verið að takast á um langtíma hagsmuni í skiptingu aflaheimilda milli þjóða. Fyrsta verkefnið sem ég kom að voru samningar um skiptingu veiði- heimilda úr norsk/íslenska síldarstofninum. Grund- vallarsjónarmiðið í þeim viðræðum var fyrst og fremst að sjá til þess að stofninn verði ekki ofveiddur og koma í veg fyrir hrun hans eins og varð á árunum í kringum 1970.“ Jóhann kom einnig að gerð loðnusamningsins milli Islendinga, Norðmanna og Grænlendinga sem lauk í maí 1998 en erfiðasta samningamálið sem Jóhann tók þátt í var lausn Smugudeilunnar. „Þetta var afar tilfinningaþrungið mál, bæði fyrir okkur og ekki síð- ur Norðmenn. Þetta var erfið deila og þjóðréttarlega mjög snúin. Þarna tókust á hagsmunir mikilla fisk- veiðiþjóða og deilan hefði auðveldlega getað haldið áfram árum saman en það hefði einungis bitnað á þorskstofninum í Barentshafmu og þær þjóðir sem komu að málinu hefðu tapað langtíma hagsmunum." I samninganefndum sem þessari sitja iðulega lög- fræðingar og/eða menn með reynslu úr stjórnsýsl- unni. Jóhann segir reynslu sína sem vísindamanns hafa reynst vel í þessum samningamálum. „Málflutn- ingur minn tók vitaskuld mið af vísindum og ég er ekki frá því að það hafi skilað sér til viðsemjenda okk- ar, sem voru óvanir því að vísindamenn leiddu samn- inganefnd. Fyrir vikið held ég að vísindaleg og fisk- verndarleg rök hafi skilað sér betur í samningunum en ella, öllum samningaaðilum til hagsbóta. En því má heldur ekki gleyma að til þess að ná árangri í samningaviðræðum sem þessum þarf sterkan bak- hjarl sérfræðinga á sviði þjóðréttar, lögfræði og samn- ingatækni. Þess naut ég í samningaviðræðunum, frá reynslumiklu fólki bæði úr ráðuneytinu og meðal út- vegsmanna." 16

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.