Ægir - 01.11.2000, Síða 32
VELBUNAÐUR SKIPA
Olís þjónustar skipin:
Olían skiptir miklu um endingu
vélbúnaðarins
„í gegnum árin hefur byggst upp mjög
fjölbreytt og viðamikil þjónusta hjá okk-
ur við skipaflotann hvað snertir eldneyti
og olíur. Fyrir utan eldneytið sjálft þá
snýst verkefnið um alls kyns tæknilega
þjónustu, ráðgjöf um olíunotkun, útgáfu
smurkorta fyrir hvert og eitt skip og
þannig mætti áfram telja. Að mínu mati
er það þjónusta á breiðum grundvelli sem
útgerðunum er mikilvægast að fá þegar
allt kemur til alls. Og rétt notkun olíu er
mikilsverður þáttur varðandi endingu
vélbúnaðarins um borð,“ segir Kristinn
Leifsson hjá Olís.
„Utgerðirnar leita til okkar með fyrir-
spurnir um olíur, notkun þeirra og eigin-
leika og að baki okkar ráðgjöf eru ýmsar
rannsóknir sem við byggjum okkar upp-
lýsingagjöf á. Við gerum því snöggtum
meira fyrir skipaflotann en sinna bara
eldsneytisþættinum, en við fáum líka
mikið af fyrirspurnum sem snúa að þeim
lið,“ segir Kristinn.
Svokölluð smurkort fyrir skip eru gerð
hjá olíufélögunum fyrir sína viðskipta-
menn og fela þá í sér nákvæmar upplýs-
ingar fyrir vélstjórana um olíugerðir, allt
frá feiti til eldsneytis. Ekki er óvarlegt að
ætla að í stærstu skipum geti verið 10-20
mismunandi olíugerðir í notkun á hverj-
um tíma, enda margt í starfsemi hvers
skips sem byggist á olíu. „Eg átti t.d. von
á að glussakerfinu yrðu smám saman að
víkja fyrir rafmagnsmótorum en raunin
hefur orðið önnur og ekki að sjá annað en
vélbúnaður fiskiskipa byggist áfram á ol-
íum,“ segir Kristinn.
Hann hælir íslenskum vélstjórum fyrir
mikinn áhuga á fyrirbyggjandi viðhaldi
og telur óhætt að fullyrði að viðhalds-
þáttur fiskiskipa fari batnandi með
hverju árinu. „Við sjáum t.d. að notkun
tölvuforrita til að halda utan um skrán-
ingu viðhalds er mjög vaxandi en grund-
vallaratriðið er að útgerðarmenn séu til-
búnir að verja fjármunum í reglubundið
og fyrirbyggjandi viðhald og það eru þeir
í vaxandi rnæli," segir Kristinn.
Kristinn Leifsson hjá Olís.
Ferskur & fróðlegur
Áskrifarsími 5510500