Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 8

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 8
6 Ég geri ráð fyrir, að öll þessi mál verði komin í framkvæmd eftir 10—20 ár og er þá háskólinn fullskipaður. En á þess- um árum mun hið innra lif einnig taka breytingum. Sam- timis hinni andlegu þjálfun hinna ungu menntamanna mun einnig keppt að því að stæla likama þeirra með íþróttaiðk- unum. Er nú þegar hafinn undirbúningur undir skipulagða iþróttakennslu, og er keppt að því marki, að liver einasti stúdent, sem er likamlega heilljrigður, stundi íþróttir og ljúki prófi í þeim eftir 2 ár, og verði þetta slcilyrði þess, að hann fái að ganga undir emhættispróf, en að þessum 2 ár- um liðnum fái liann tækifæri til frjálsra iþróttaiðkana á meðan hann dvelst við háskólann. íþróttakennsla þessi á eingöngu að miða að því að þjálfa samtimis líkama og sál á mikilsverðustu þroskaárum Iiinna ungu nemanda og skapa nýja kynslóð stúdenta, djarfhuga og þróttmikla með full- komnu samræmi andlegra og líkamlegra hæfileika. Mun þá háttprýði og' snyrtimennska verða ráðandi i fari þeirra, og er þeir gerast embættismenn, munu þeir verða færari að gegna hinum vandasömu störfum, er þeirra híða. Er þess vænzt, að tillögur háskólaráðs um íþróttaþjálfun verði lögfestar á næsta Alþingi, enda hefur rikisstjórn lofað þeim stuðningi sínum. Svipað fyrirkomulag er nú ráðandi við ýmsa erlenda háskóla, t. d. í Bandaríkjunum og á Þýzka- landi og við einn eða fleiri háskóla í Svíþjóð. í þessu sam- handi er vert að minnast þess, að nákvæm læknisskoðun allra stúdenta fer nú fram við háskóla vorn tvisvar sinnum á námstíma hvers, og hefur svo verið um nokkur ár. Mun háskóli vor að þessu leyti standa framar en flestir aðrir háskólar. Ýmis önnur mál, er snerta líf og störf háskólans, munu verða athuguð og levst á næstu árum. Eitl af þeim er hin mikla aðsókn stúdenta í sumar deildir háskólans, eink- um læknadeild. Háskólinn hefur bent ríkisstjórn og Alþingi á þá miklu hættu, er stafað getur af offjölgun lækna í land- inu. Hefur hann beðið um heimild til þess að takmarka að- gang i sumar deildir, einkum læknadeild, og er fyrirsjáan-

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.