Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 9

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 9
legt, að þessum ráðum verður að beita og verður það auð- veldast á þann hátt, að opna stúdentum samtímis nýjar námsleiðir við háskólann. Hlutverk háskóla vors er að skapa dugandi embættismenn og starfsmenn á öllum þeim svið- um, er þjóðfélaginu mega að gagni koma, en ekki að skapa akademiskan öreigalýð og láta tilviljun eina ráða, hvort of margir kandidatar í ýmsum fræðigreinum taki próf, er síðan geti aldrei liaft not þeirrar þekkingar, er þeir liafa öðlazt í harðri baráttu á beztu árum ævinnar. Háskóli vor hefur frá byrjun starfsemi sinnar, og ekki sizt á þessu ári, orðið mikilla vinsælda var meðal þjóðarinnar. Hafa þær, meðal annars, komið í ljós á þann hátt, að margir liafa stofnað sjóði til þess að hlynna að vísindalegum störfum við liáskólann. Fvrir nokkrum dögum færði prófessor Guð- mundur Hannesson mér sjóð, rúmlega 5000 kr., er nefnist Framfarasjóður stúdenta og er stofnaður af nokkrum stúdentum, er tóku stúdentspróf 1887 og 1888. Nefndist sjóð- urinn uppbaflega Menningarsjóður íslands, en markmið lians er að styðja íslenzka menningar- og framfaraviðleitni, einkum það, sem vænlegast þætti til þess að efla atvinnu- vegi vora og bæta efnalega afkomu almennings. Þegar sjóð- urinn er orðinn 10000 kr. má verja hálfum vöxtum í þessu augnamiði. En til þess er ætlazt, að sjóðurinn vaxi á þann hátt, að hver sá, er embættisprófi lýkur, sjái sóma sinn í því að skuldbinda sig til þess að leggja í liann ákveðna upp- hæð einu sinni á ævinni, og ekki síðar en 5 árum eftir að hann er kominn í embætli, eins og til var ætlazt í upphafi. Sú hugsun, er að baki þessarar sjóðstofnunar liggur, er fögur, og vænti ég, að hún megi bera ávöxt á komandi árum. Um leið og ég þakka fyrir þessa gjöf, flyt ég einnig þeim akademisku félögum og einstökum mönnum þakkir fyrir gullkeðju þá, er þeir í dag hafa gefið háskólanum og rektor hans á að bera við hátíðleg tækifæri. Ég liefi þá í stórum dráttum degið upp mynd af fram- tíðaráformum háskóla vors. Margt er ógert og margt er ófull-

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.