Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Side 15

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Side 15
13 Tlioroddsen í nefndinni, meðan hann annast kennslu fyrir próf. Bjarna. Nefndin rannsakaði skilyrði til kvikmvnda- liússreksturs og komst að þeirri niðurstöðu, að það mundi arðvænlegt fyrirtæki. Lagði nefndin til, að háskólinn setti á stofn kvikmyndahús. Háskólaráðið samþykkti tillögur nefndarinnar, og festi liáskólinn kaup á eigninni Austur- stræti 5 fvrir 215000 krónur. Yar síðan efnl til samkeppni um uppdrætti að kvikmyndahúsi, og hárust 13 uppdrættir. 1. verðlaun (4000 kr.) hlaut uppdráttur eftir arkitektana Eirík Einarsson og Sigurð Guðmundsson, 2. verðlaun (2000 kr.) hlutu húsameistararnir Gísli Halldórsson og' Sigvaldi Thordarson og 3. verðlaun (1000 kr.) hlaut Gunnlaugur Hall- dórsson arkitekt. Auk þess var kevpl hugmynd úr uppdrætti eftir Ágúst Pálsson arkitekt. Með því að engin innflutningsleyfi fengust til hvggingar stórliýsa í Reykjavík á þessu ári, varð ekkert úr framkvæmd- um í þá átt, að koma upp kvikmyndahúsi á þessari lóð, sem keypt var. Hins vegar var leigumála á eigninni komið í það liorf, að tekjur af lienni hrökkva til þess að greiða öll gjöld af henni og' hankavexti af kaupverðinu. Þegar víst var orðið, að ekki vrði unnt í bráð, að koma upp liúsi til kvikmyndahússreksturs, var sótt um það til bæjarstjórnar, að fá á leigu í því skyni hús, sem Revkja- vikurbær á i Tjarnargötu og hafði áður verið notað til ís- geymslu. Samþykkti hæjarstjórn að leigja háskólanum húsið. Kvikmyndaliússnefndin hefur tryggt sér nauðsynlegt efni til brevtinga á húsinu og munu framkvæmdir hefjast hráðlega. Ný embætti við háskólann. Samkvæmt ósk liáskólaráðs var cand. mag. Björn Guðfinnsson með stjórnarráðshréfi 25. ágúst 1941 setlur lektor í íslenzku nútíðarmáli og hagnýtri kennslu frá 1. ágúst að telja. Ennfremur var Gylfi Þ. Gíslason hagfræðingur skipaður dósent frá 1. septemher 1941 í viðskiptafræði í laga- og hag- fræðideild.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.