Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 75
73
komu að engu haldi, til þess að fá þessu breytt. Þegar er vitað var, að
GarSur fékkst ekki losaSur, liófst ráSiS lianda í samvinnu viS GarSs-
stjórn um aS aSstoSa stúdenta viS útvegun lnisnæSis, þar sem fyrirsjáan-
leg var mikil lnisnæSisekla í bænum. Starfsemi þessi har mjög litinn
árangur, og fór ráðiS þvi þess á leit við háskólaráð, að fá nokkuð af
kjallara háskólans til íbúðar fyrir stúdenta, og varð liáskólaráð við
þeirri beiðni. GarSstjórn stendur nú fyrir þeim breytingum, sem gera
þarf, til þess að kjallarinn verði liæfur til íbúðar. Enn fremur fór ráðið
þess á leit, að stúdentar fengju lierbergi á efstu hæð háskólans til
ibúðar, en þeirri málaleitan sá háskólaráð sér ekki fært að verða við.
Skemmtifélag stúdenta var stofnað á árinu aS tilhlutun ráðsins.
Gekkst sá félagsskapur fyrir samkomum stúdenta, og veitti háskólaráð
leyfi til þess, að þær væru haldnar i húsnæði mötuneytisins i háskól-
anum. VarS þessi starfsemi mjög vinsæl meðal stúdenta, þvi að mjög
erfitt er að fá samkomustaði leigða nú á tímum.
íþróttamál. Stúdentar hafa átt erfiða aðstöðu við iSkun íþrótta, þvi
að mjög hefur vantað á, að vel liafi verið að þeim búið meS íþrótta-
kennslu. Á þessu ári urðu miklar framfarir í þessum málum. Nú hafa
stúdentar íjaróttakennara, og vonandi verður þess skammt að bíSa, aS
háskólaráS komi upp íþróttahúsi, sem lengi hefur verið barizt fyrir að
yrði reist. Enn fremur eru stúdentar skyldir að leggja stund á leikfimi
og sund fjögur fyrstu kennslumisseri. Af öllu þessu má vænta betra
árangurs i þessum málum en verið hefur.
Annars Iiafði íþróttafélag háskólans forgöngu um iþróttastarfsemi
meðal stúdenta eins og að undanförnu.
Stúdentaskiptastyrkur var veittur þeim Svavari Hermannssyni stud.
chem. og Geir Reyni Tómassyni stud. med. dent., báðum til náms í
Þýzkalandi, kr. 375.00 til hvors. Fleiri en þessir tveir sóttu ekki um
þennan styrk.
í Garðstjórn var Hannes Þórarinsson endurkosinn.
í stjórn Lánssjóðs stúdenta áttu sæti, þeir prófessor Bjarni Benedikts-
son, Björn Arnason cand. juris, og fyrir hönd stúdentaráðs Bergþór
Smári stud. med.
Þá kom stúdentaráðið á ýmsan hátt fram fyrir hönd stúdenta.
Má þar fyrst nefna hátíðahöld stúdenta 1. des., seni fóru fram með
svipuðum hætti og undanfarin ár. Stúdentar komu saman í háskólanum
og gengu síðan fylktu liði um bæinn og staðnæmdust við Alþingisliúsið.
Skrúðgangan var nokkuð fjölmennari en undanfarin ár, þvi að ýms æsku-
lýðsfélög bæjarins tóku þátt i henni. Af svölum alþingishússins flutti
atvinnumálaráðherra Ólafur Tliors ræðu, og var henni útvarpað.
Skemmtun var lialdið í hátíðasal háskólans i stað þeirrar, sem áður