Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 78
76
setningar en samþykkt leyfir, er háskólaráði lieimilt að setja, í samráði
við hverja deild, ákvæði um, eftir hverjum reglum hinni tilteknu tölu
sé veittur aðgangur að deildinni.
Nú er aðgangur að háskóladeild takmarkaður, og gelur liáskólaráð
þá mælt svo fyrir, að stúdentum þeim, sem í deildinni eru, skuli skylt
að sýna í lok hvers kennslumisseris vottorð kennara deildarinnar um,
að þeir hafi stundað nám í deildinni það kennslumisseri.
3. gr. — Aftan við 20. gr. laganna bætist: eða 2 kennslumisseri, sé að-
gangur að deild þeirri, sem hann er skrásettur í, takmarkaður samkv.
2. málsgr. 15. greinar.
4. gr. — 22. gr. laganna orðist þannig:
í reglugerð háskólans skulu sett ákvæði um próf, bæði undirbúnings-
próf og fulinaðarpróf, um námsgreinar þær, er prófa skal í, um ein-
kunnagjafir og hversu háa einkunn þurfi til að standast prófið, bæði í
einstökum prófgreinum og i aðaleinkunn. Skipta má fullnaðarprófi i
fleiri liluta og kveða á um það, livað líða megi lengstur eða skemmstur
timi milli þess, að einstakir liluta prófsins eru teknir. Einnig má setja
fyrirmæli um það, að stúdent, er ganga vill til prófs, skuli áður liafá
lokið undirbúningsprófum eða notið kennslu í tilteknum greinum á
námskeiðum, í æfingaflokkum eða við verklegt nám, þar á meðal að
hann hafi notið kennslu í iþróttum ekki skemur en 4 kennslumissiri.
Lög- um breyting á lögum nr. 44 19. júní 1933,
um stofnun happdrættis fyrir ísland.
1. gr. — Tölurnar „60“ og „6“ i b-iið 1. greinar verða: 80 og 8.
2. gr. — Á undan tölunni „5000“ í c-lið 1. greinar koma orðin: ekki
færri en.
3. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög urn tannlæknakennslu við læknadeild háskólans.
1. gr. — Stofna skal til tannlæknakennslu við læknadeild háskólans.
2. gr. — Þeir, stúdentar, sem leggja vilja stund á tannlæknanám og
ljúka tannlæknaprófi, skulu hafa lokið miðhlutaprófi í læknisfræði. Að
öðru leyti skal kveðið á um tilhögun kennslunnar i reglugerð.
3. gr. — Til þess að annast tannlæknakennsluna skal skipa sérstakan
dósent við læknadeildina og tannsmið. Aukakennslu má fela stundakenn-
urum. Dósentinn nýtur sömu réttinda og aðrir dósentar háskólans. Ráð-
herra ákveður tannsmið og stundakennurum laun, er greiðast úr ríkis-
sjóði.
4. gr. — Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.